Innlent

Bústaður á Þingvöllum brann til kaldra kola

Mynd úr safni
Mynd úr safni

Sumarbústaður við Þingvallavatn brann til kaldra kola í nótt. Bústaðurinn var mannlaus en eigendurnir sváfu í nýjum bústað þar við hliðiná.

Það var bóndi á nálægum bæ sem varð var við eldinn upp úr miðnætti og gerði slökkviliði viðvart. Engan sakaði en talið er að kviknað hafi í bústaðnum út frá arineldi.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×