Útilokar þjóðstjórn undir forystu Sjálfstæðisflokksins 26. janúar 2009 18:52
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var að koma af fundi með forseta Íslands á Bessastöðum. Eftir fundinn ræddi hún við fréttamenn og sagðist hafa greint forseta frá því sem gerst hafi í gær og í dag. Í máli hennar kom fram að hún útilokar þjóðstjórn undir forystu Sjálfstæðisflokksins. Ingibjörg sagði að Samfylkingin hefði beðið lengi eftir því að Sjálfstæðisflokkurinn gerði ákveðnar breytingar og nefndi þar tiltekt í yfirstjórn Seðlabankans til þess að öðlast traust og trú. Hún útilokaði ekki minnihlutastjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna með stuðningi Framsóknarflokksins. Hún sagði ekki rétt hjá Geir H. Haarde forsætisráðherra að Samfylkingin væri í tætlum en eðlilegt væri að hann beindi sjónum fólks frá sínum flokki og yfir á Samfylkinguna. „Við höfum beðið lengi eftir Sjálfstæðisflokknum og nú er hann búinn að fresta landsfundi sínum þar sem ræða átti mikilvæg mál tengd Evrópusambandinu. Flokkurinn hefur ekki verið fær um að gera þessar breytingar og ég held að menn ættu að líta sér nær þegar þeir tala með þessum hætti." Ingibjörg sagðist ekki telja útilokað að á þessum tíma annað kvöld væri búið að mynda nýja Ríkisstjórn. Hún sagðist ekki telja neinn ávinning í því að fjölga í Ríkisstjórn með þjóðstjórn þar sem Sjálfstæðiflokkur væri í forystu. Hún sagðist ítreka tilboð sitt þar sem hún viki til hliðar og Jóhanna Sigurðardóttir myndi leiða komandi stjórn. Hún sagðist treysta Jóhönnu allra kvenna best til þess að gera það.
Mest lesið Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi Innlent Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Erlent Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Erlent Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Innlent Kirkja í Amsterdam alelda Erlent Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Innlent Íslendingar tjá sig um skaupið: „Versta skaup ever“ eða það besta í manna minnum? Lífið Hitnar undir feldi Péturs Innlent Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Innlent Fleiri fréttir Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Sjá meira