Aðdáendur Jacksons fjölmenntu við sjúkrahúsið Atli Steinn Guðmundsson skrifar 26. júní 2009 07:12
Mörg hundruð aðdáendur Michaels Jackson söfnuðust saman við UCLA-sjúkrahúsið þar sem poppstjarnan lést í gærkvöldi klukkan tæplega hálftíu að íslenskum tíma. Jackson var 50 ára gamall og fékk hjartaáfall á heimili sínu. Hann var fluttur meðvitundarlaus á sjúkrahúsið þar sem hann lést skömmu síðar, án þess að komast til meðvitundar. Jackson var fæddur árið 1958 og var aðeins 11 ára þegar hann vakti fyrst athygli með fjórum bræðrum sínum í hljómsveitinni Jackson Five. Hann hóf upp úr því eigin feril og vakti heimsathygli með plötunni Thriller árið 1982 en meðal annarra þekktra verka hans eru plöturnar Bad og Dangerous. Jackson kvæntist Lisu Marie Presley árið 1994 en þau skildu tveimur árum síðar. Hann kvæntist nokkru eftir það hjúkrunarkonunni Debbie Rowe og átti með henni tvö börn áður en þau skildu árið 1999. Aðdáendur Jacksons og aðrir tónlistarmenn eru harmi slegnir, Madonna segist í viðtali við Telegraph ekki geta hætt að gráta og Britney Spears harmar fráfall hans einnig mjög, hún segist hafa hlakkað mjög til að sækja fyrirhugaða tónleika Jacksons í London. Meðal þeirra sem voru við dánarbeð hans voru Katherine, móðir hans, og La Toya systir hans.
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira