Innlent

Nágrannakona í Óðinsvéum: Blóðslettur á gluggum

Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar
Blóðslettur sáust á gluggum íbúðarinnar, segir nágranni 13 ára gömlu stelpunnar sem myrt var af föður sínum í Óðinsvéum í gær. Hann barði hana yfir 20 sinnum með skiptilykli í andlit og höfuð en sagðist ekki hafa ætlað að bana henni heldur berja hana þar til hún missti meðvitund.

Faðir Caroline var dæmdur í 4 vikna gæsluvarðhald í dag og verður vistaður á geðdeild. Hann neitaði sök en sagði við yfirheyrslur í dag að Caroline hefði hótað sér með hnífi, það væri engu líka en hún væri með geðhvarfasýki.Í gær hefði hún hótað að fara inn í herbergi til stjúpmóður sinnar þar sem hún svaf með 17 mánaða gömlum bróður hennar og skera hana.

Faðir hennar segist hafa viljað koma í veg fyrir það og berja hana þar til hún myndi missa meðvitund. Það gerði hann með skiptilykli og barði hana í höfuð og andlit um 20 sinnum. Hann reyndi að lífga hana við en stjúpmóðir stúlkunnar hringdi á lögregluna. Nágranni fjölskyldunnar segir ummerkin eftir ódæðið hafa sést á gluggum íbúðarinnar.

„Ég gekk framhjá íbúðinni og þar sá ég blóðslettur á glugganum. Það hlýtur því mikið að hafa gengið á þarna inni. Enginn tók eftir neinu. Nágrannakonan sem býr við hliðina var ekki heima í gær," sagði konan sem fréttastofa ræddi við.

Hún segir fjölskylduna hafa verið hina venjulegustu og að samskipti feðginanna hafi verið ljúf þann stutta tíma sem þau bjuggu í húsinu. Hún segir nágrannanna vera í miklu áfalli.

„Hefurðu rætt við aðra nágranna? Já, þeir eru í jafn miklu áfalli og ég. Einn sagði að við ættum að fá sálfræðihjálp en það er enginn sem hefur boðið okkur það. Ég held að við hefðum gott af því. Ég er hér með hnút í maganum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×