Ný útlánastofnun á Íslandi Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 30. júlí 2009 18:23 Ragnheiður H. Magnúsdóttir, framleiðsluverkfræðingur og frumkvöðull.
Nýja útlánastofnunin Uppspretta kemur til með að taka til starfa á landinu þegar hausta tekur. Hér er þó ekki um að ræða hefðbundinn banka, heldur svokallaða örlánamiðlun að asískri fyrirmynd. Bangladesjinn Muhammad Yunus hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 2006 fyrir örlánastarfsemi sína, sem gekk út á að venjulegt fólk gat lánað fátækum, einkum konum, lágar upphæðir til að koma á fót rekstri og vinna sig út úr fátækt. Ragnheiður H. Magnúsdóttir, einn aðstandenda Uppsprettu, segir slíka örlánastarfsemi nú hafa færst frá því að vera þróunaraðstoð og í að vera hefðbundin lán milli fólks. „Við tókum eftir því að í þessu ástandi á Íslandi vantar fjármagn, sérstaklega fyrir fólk og fyrirtæki sem er að skapa eitthvað nýtt," segir Ragnheiður í samtali við fréttastofu. Því hafi hún um síðustu áramót ákveðið, ásamt tveimur öðrum frumkvöðlum, að koma á fót örlánamiðlun, sem hafa mun aðsetur á heimasíðunni uppspretta.is. Ekki bara gróði Þar munu frumkvöðlar geta listað nákvæmlega út hugmyndir sínar að rekstri, auk lánsupphæðar sem verkefnið krefst, lánstíma og hámarksvexti. „Þá koma lánveitendur og skoða hugmyndirnar. Ef mér sem lánveitanda líst vel á hugmynd get ég ákveðið að taka þátt í hugmyndinni og lánað viðkomandi," segir Ragnheiður. Hún segir lánin geta verið allt frá 2.500 krónum og upp úr. Þannig eigi allir að geta lánað, þó þeir hafi ekki mikið á milli handanna sjálfir, og margir lánveitendur séu á bak við hvert lán. „Við hugsum þetta þannig að hver sem er geti komið og styrkt góða hugmynd. Þetta snýst ekki bara um að græða, heldur líka að gera gott fyrir samfélagið," segir Ragnheiður, sem hefur enga trú á öðru en að lánveitendur komi til með að taka þátt í framtakinu. Lánveitendurnir fái svo alla ávöxtun, en Uppspretta þiggi einungis þjónustugjald fyrir hvern gerðan samning. Hún segir aðspurð að þar sem ekki er um eiginlegan banka að ræða, heldur lánamiðlun, hafi regluverk bankakerfisins lítið vafist fyrir verkefninu. Netvarpið tók viðtal við Ragnheiði, þar sem hún segir frá hugmyndinni.
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Fleiri fréttir Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Sjá meira