Mun fleiri fasteignir seldar á nauðungarsölu Höskuldur Kári Schram skrifar 9. september 2009 12:02
Tæplega helmingi fleiri fasteignir hafa verið seldar á nauðungarsölu í Reykjavík það sem af er þessu ári miðað við sama tímabil í fyrra. Búist er við holskeflu uppboða í nóvember þegar lög um frestun á nauðungarsölu renna út. Tæplega 130 fasteignir voru seldar á nauðungarsölu í Reykjavík á fyrstu átta mánuðum þessa árs samkvæmt tölum sýslumannsembættisins í Reykjavík. Á sama tímabili í fyrra voru þær 78 talsins. Í vor tóku gildi lög sem gilda út októbermánuð og heimila frestun á nauðungarsölu fasteigna. Fjölmörgum nauðungarsölum hefur verið frestað þangað til í nóvember og er búist við holskeflu uppboða þegar lögin renna út - enda hafa engin nauðungaruppboð verið afturkölluð. Hjá Sýslumanninum í Reykjavík eru nú fyrirliggjandi tæplega 1.400 nauðungarbeiðnir vegna fasteigna. Sömu sögu er að segja í Hafnarfirði en þar hefur fjöldi nauðungaruppboða á fasteignum tvöfaldast á milli ára. Þar hefur einnig mörgum uppboðum verið frestað fram í nóvember og því búist við mikilli fjölgun mála þegar fresturinn rennur út. Nauðungarsala á bifreiðum virðist vera svipuð og í fyrra. Það sem af er þessu ári hafa 248 bifreiðar verið seldar nauðungarsölu í Reykjavík og 15 í Hafnarfirði.
Mest lesið Íslensk stúlka í útskriftarveislu sem breyttist í martröð Innlent Dúxinn í Kvennó úr óvæntri átt Innlent Margrét Hauksdóttir er látin Innlent Tíu milljónum fátækari eftir augnablik af einbeitingarleysi Innlent Nauðlending á þjóðveginum Innlent Höfum fullkomlega misst stjórn á útlendingamálum Innlent Líkir aðalfundi Sósíalista við Warhammer-útsöluna í Nexus Innlent Telur að meðleigjandinn hafi kveikt í Innlent „Hann er að leika sér að eldinum!“ Erlent Náðar spilltan fógeta Erlent Fleiri fréttir Telur að meðleigjandinn hafi kveikt í Kaup á kínverskum kísil „með ólíkindum“ og sérsveitaræfing Erfiðast að læra íslenskuna Afnema lengri opnunartíma í ákveðnum leikskólum borgarinnar Dúxinn í Kvennó úr óvæntri átt Utanríkisráðherra Bretlands á leið til Íslands Eldur kviknaði í hjólhýsi við íbúðarhús Fjórða hvert ungmenni talar sjaldnar en einu sinni í viku við foreldra sína Ungliðahreyfing Viðreisnar ályktar gegn ákvörðun ríkisstjórnarinnar Lýstu yfir óvissustigi vegna sömu flugvélar Hefur lagt tillögur á borðið en tjáir sig ekki um lögreglustjóra Höfum fullkomlega misst stjórn á útlendingamálum Áhyggjuefni hversu fáir treysta íslenskum fjölmiðlum Uppsagnir yfirvofandi á Húsavík Hnífi beitt í heimahúsi á Húsavík Frábiður sér að nördum sé líkt við Sósíalista Íslensk stúlka í útskriftarveislu sem breyttist í martröð Fyrrverandi þingmenn í nýrri stjórn Evrópuhreyfingarinnar Segir Guðmund Hrafn ekki sjá bjálkann í eigin auga Mannréttindadómstóllinn sýknar ríkið af kröfum mótmælenda Flestir urðu varir við „falsfréttir“ fyrir síðustu alþingiskosningar Margrét Hauksdóttir er látin Líkir aðalfundi Sósíalista við Warhammer-útsöluna í Nexus Þorbjörg sögð bjóða Helga embætti vararíkislögreglustjóra Nauðlending á þjóðveginum Tíu milljónum fátækari eftir augnablik af einbeitingarleysi Lækkandi fæðingartíðni ekki hundaflauta: „Ég bara hafna algjörlega forsendunum“ Hætt í VG og segir spillingu grassera í íslenskum stjórnmálum Ný forysta stefni í ranga átt „Einhver erfiðasti tími sem ég hef gengið í gegnum“ Sjá meira