Brotlending ríkisstjórnarinnar ef rétt reynist 5. maí 2009 14:17 Bjarni Benediktsson
Bjarni Benediktsson segir það í raun hlægilegt að láta sér detta í hug að Alþingi muni samþykkja það að Samfylkingin fái umboð til þess að fara til Brussel og semja um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Í Morgunblaðinu í morgun er því haldið fram að samkomulag ríkisstjórnarinnar í evrópumálum sé að Alþingi verði falið að ákveða endanlega hvort hafnar verði aðildarviðræður við ESB eða ekki. „Þetta er auðvitað engin lending, heldur brotlending ef niðurstaða flokkanna um þessi mál er svona," segir Bjarni aðspurður um fullyrðingar Morgunblaðsins. „Þetta hljómar eins Steingrímur J. sé að veita Jóhönnu Sigurðardóttur leyfi til þess að leggja fram þingsályktunartillögu um að Samfylkingin fái leyfi og sú þingsályktunartillaga hefur enga þýðingu umfram aðrar tillögur og er í sjálfu sér afskaplega máttlítið plagg," segir Bjarni. Bjarni segir með ólíkindum að ríkisstjórnin ætli að hreyfa sig í jafn mikilvægu máli án þess að vera sammála. Í máli sem snertir fullveldi Íslands, yfirráð yfir auðlindunum, matvælaöryggi, peningamálastefnuna og aðra slíka hluti. „Og þar sem þeir virðast vera ósammála þá er með ólíkindum að þeir ætli að leggja af stað í einhverja meðferð án þess að það sé gerð minnsta tilraun til þess að eiga um slíkt samráð milli þingflokkanna. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þessi ríkisstjórn gerir það, því þetta var eins í stjórnarskrármálinu." Bjarni segir augljóst að þingið muni ekki veita Samfylkingunni opið umboð til þess að semja um aðild Íslands að Evrópusambandinu. „Það má vel vera að menn í flokknum hafi ólíkar skoðanir en það eru allir sammála um að það sé óskynsamlegt að veita umboð sem gengur út á það að Samfylkingin fari til Brussel og semji um aðild Íslands að Evrópusambandinu."
Tengdar fréttir Kemur ekki til greina að Samfylkingin annist ein aðildarviðræðurnar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir ekki koma til greina að fela Samfylkingunni einni umboð til að fara í viðræður um aðild Íslands að Evrópusamgandinu. Hann segir einnig að ef rétt reynist, og ríkisstjórnin ákveði að fela þinginu að taka ákvörðun um hvort hefja eigi viðræður, sé það heldur rýr uppskera eftir tíu daga vinnu. 5. maí 2009 11:52 Birkir Jón: Lofar ekki góðu ef ríkisstjórnin er klofin í ESB máli Birkir Jón Jónsson. varaformaður Framsóknarflokksins segir það ekki lofa góðu ef ríkisstjórnin geti ekki komið sér saman um Evrópumálin og ætli sér þess í stað að leggja spurninguna um hvort hefja eigi aðildarviðræður í dóm Alþingis eins og Morgunblaðið segist hafa heimildir fyrir. Hann segist hlynntur aðildarviðræðum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. 5. maí 2009 10:23 Mest lesið Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér Erlent Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu Innlent Fjölgun eldri kvenna í Kvennaathvarfi: „Þessar konur bíða ekki“ Innlent Skapari Call of Duty lést í bílslysi Erlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Hiti geti mest náð átján stigum Veður „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Innlent Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Innlent „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Innlent Ráðist á pilt á heimleið Innlent Fleiri fréttir Stjórnvöld eigi að sjá sóma sinn í að greiða allan kostnað Ráðning ráðgjafafyrirtækja skekki myndina milli stjórnar og stjórnarandstöðu „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Fjölgun eldri kvenna í Kvennaathvarfi: „Þessar konur bíða ekki“ Ráðist á pilt á heimleið Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Vestmannaeyingar fá að eiga Vestmannaeyjar Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Höfðu samband við dönsku herstjórnina á Grænlandi Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Glæný Maskínukönnun og jólaóveður Ársæll hringdi beint í utanríkisráðherra eftir fundinn Ósannað að fimmtán ára stúlka hafi stungið sextán ára pilt tvisvar Sameina Farice, Öryggisfjarskipti og hluta Neyðarlínunnar Gaf fingurinn á Miklubraut Birtir drög að lögum um lagareldi: Hyggst leggja niður Fiskeldissjóð Hundrað og fjörutíu milljarða bótakrafa á Samherja sé súrrealísk Skemmdir í kirkjugörðum vegna aksturs utan vegar Ólýsanlegur harmur fyrir fjölskylduna og söfnun hleypt af stokkunum „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Vill leiða lista Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ „Þetta hefur verið þungur tími“ Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Færir nýársboðið fram á þrettándann Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Sjá meira
Kemur ekki til greina að Samfylkingin annist ein aðildarviðræðurnar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir ekki koma til greina að fela Samfylkingunni einni umboð til að fara í viðræður um aðild Íslands að Evrópusamgandinu. Hann segir einnig að ef rétt reynist, og ríkisstjórnin ákveði að fela þinginu að taka ákvörðun um hvort hefja eigi viðræður, sé það heldur rýr uppskera eftir tíu daga vinnu. 5. maí 2009 11:52
Birkir Jón: Lofar ekki góðu ef ríkisstjórnin er klofin í ESB máli Birkir Jón Jónsson. varaformaður Framsóknarflokksins segir það ekki lofa góðu ef ríkisstjórnin geti ekki komið sér saman um Evrópumálin og ætli sér þess í stað að leggja spurninguna um hvort hefja eigi aðildarviðræður í dóm Alþingis eins og Morgunblaðið segist hafa heimildir fyrir. Hann segist hlynntur aðildarviðræðum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. 5. maí 2009 10:23