Megas fer á menningarhátíð í Kanada 24. apríl 2009 06:00 Afi Megas fer í sína jómfrúarferð til Kanada þegar hann leikur á íslensku menningarhátíðinni Now, eða Núna, hinn 30. apríl.
Fjöldi íslenskra listamanna kemur fram á íslensku menningarhátíðinni Núna, eða Now, sem stendur frá 24. apríl til 25. maí í Kanada. Meðal þeirra sem stíga á svið má nefna Baggalút, Kippa Kaninus, Borgar Magnússon og Lay Low. Aðalstjarna hátíðarinnar verður þó sjálfur Megas með hljómsveit sinni Senuþjófunum en Megas hefur verið kallaður afi íslenska rokksins í kanadískum fjölmiðlum að undanförnu. Hátíðin þykir hafa heppnast gríðarlega vel undanfarin ár og skipuleggjendurnir hafa því brugðið á það ráð að lengja aðeins í henni. Hún er því fimm vikur í stað tíu daga. Megas kemur fram á tónleikastaðnum The Pyramid Cabaret hinn 30. apríl ásamt Baggalúti. Ítarlega er fjallað um hátíðina á vef Winnipeg Free Press og þar fer einn af forsvarsmönnum hátíðarinnar, Anne McPherson, fögrum orðum um Megas. „Margir hafa sagt að hann sé einhvers konar Bob Dylan þeirra Íslendinga," segir Anne í samtali við vefinn. „Og sumir halda því fram að hann sé afi íslenska rokksins," bætir Anne við. Þótt tónlistarfólk verði áberandi á þessari alíslensku menningarhátíð í Kanada þá fær leiklistin einnig að blómstra því áðurnefnd McPherson hyggst setja upp verk Jóns Atla Jónassonar, Brim, í samstarfi við sex kanadíska leikara. - fgg
Mest lesið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Einvígi aldarinnar endurtekið Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum Tónlist Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Lífið Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Fleiri fréttir Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Sjá meira