Ofbeldismenn skipta konum út eftir hentugleika 29. nóvember 2009 19:30
Dæmi eru um að ofbeldismenn hér á landi velji sér kerfisbundið eiginkonur frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins og skipti þeim út eftir hentugleika. Þetta sýna gögn Kvennaathvarfsins en konur sem koma hingað frá löndum utan EES eru oft háðar maka um framlengingu dvalarleyfis. Í nýrri rannsókn sem kynnt verður í vikunni er fjallað um aðstæður 67 erlendra kvenna sem leituðu ásjár Kvennaathvarfsins síðustu tvö ár leiðir í ljós að konur sem koma utan EES svæðisins eru mjög varnarlausar fyrir ofbeldi eiginmanna. Ástæðan er helst sú að dvalarleyfi þeirra er tengt maka þeirra í fjögur ár eftir komu. Þetta gefur makanum mikið vald yfir lífi þeirra þar sem lífsafkoma konunnar og framtíð barna hennar er þá í höndum hans. Svo virðist sem einstaka menn nýti sér þetta fyrirkomulag og hóti konum brottrekstri úr landinu verði þær ekki að vilja hans í einu og öllu og skipti jafnvel konum út eftir hentugleika. „Þegar þær fara að mögla er það þeim bara sagt, ef að þú sættir þig ekki við þetta sendi ég þig bara heim. Þá eru þær í þeirri stöðu að dvalarleyfi þeirra er háð samþykki maka," segir Hildur Guðmundsdóttir, vaktstjóri í Kvennaathvarfinu. Jafnvel hefur það komið fyrir að maður ók konu sinni í Kvennaathvarfið og tilkynnt starfskonum þar að hann væri orðinn leiður á henni og vissi ekkert hvert hann gæti farið með hana. Hildur segir að fyrir utan að þær hafi þurft að sæta andlegu og líkamlegu ofbeldi séu dæmi um að þær hafi verið látnar skrifa undir skuldaviðurkenningar, við misboðið í vinnu, látnar stunda afbrigðilegt kynlíf sem þær hafi ekki löngu til svo eitthvað sé nefnt. Fjögurra ára reglan komi illa við þessar konur. Ákvæði sem var bætt í útlendingalögin í fyrra til að koma til móts við konur í ofbeldissamböndum dugi skammt. Margar kvennanna viti ekki af því sakir þess að oft einangri maki þær inn á heimilinu og fái því ekki áverkavottorð eða kalli til lögreglu. Í rannsókninni setur Hildur fram ýmsar tillögur um hvernig bæta megi stöðu þessara kvenna og barna. „Fræða konunnar. Hafa það sem fastan lið að þegar þær koma og ná í dvalarleyfi sín hjá Útlendingastofnun fái þær fræðslu um hvað þeir eigi að gera ef að ofbeldi er inni í myndinni. Fræðslan færi fram án maka," segir Hildur.
Mest lesið Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 Innlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Innlent Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Erlent Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Innlent Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Innlent Fleiri fréttir Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Sjá meira