Fyrsti þáttur Hringfaranna á netið í dag 1. maí 2009 13:39 Bandaríska Sopranos stjarnan Steve Schirripa fer með hlutverk í þáttunum.
Þættirnir Hringfararnir, eða Circledrawers í leikstjórn Ólafs Jóhannessonar hefja göngu sína í dag, 1. maí á veraldarvefnum. Um er að ræða fyrstu íslensku vefþáttaseríuna sem frumsýnd er á internetinu, öllum opið til áhorfs. Í tilkynningu frá framleiðanda kemur fram að þættirnir eru níu talsins og eru þeir frumsýndir með viku millibili og eru sniðnir að bandarískri fyrirmynd um vefþætti. Hægt er að sjá þættina á margmiðlunarsíðunum Blip.TV, YouTube.com, Hulu sem og í gegnum forritið iTunes ásamt um 50 öðrum vefmiðlum víðsvegar um heiminn. Einnig er boðið upp á að kaupa þáttaseríuna í heild sinni á opinberri heimasíðu þáttanna http://www.circledrawers.com. „Þetta er ákveðin tilraun, að kynna þennan englaheim á þennan máta. Að sjá hvort fólki hafi áhuga á efninu og hvort það sé ástæða til að halda áfram að þróa verkefnið. Þetta er alþjóðlegt efni í léttum dúr sem verður forvitnilegt að sjá hvernig það spjarar sig á sólaströndum internetsins." segir Ólafur, annar skapari og leikstjóri þáttanna. Hringfararnir segir frá hópi engla sem kallast Hringfarar sem eru neðstir í fæðukeðju englastéttarinnar. Verkefni þeirra getur verið allt frá því að blómapottur detti niður á rétta manneskju eða að hjálpa fólki yfir landamæri lífs og dauða. Draumur hvers Hringfara er að ná að klára lista af verkefnum áður en þeir deyja svo þeir geti fengið verðlaunin, að fæðast sem manneskja. Þetta er nær ómögulegt þar sem englaheimurinn er hægvirkur eins og skattstofa full af klaufaskap og seinagangi. Það er Sopranos leikarinn Steve Schirripa sem hefur verið andlit þáttanna í kynningu þeirra á netinu, en hann fer með hlutverk í þáttunum. Í helstu hlutverkum eru Hilmir Snær Guðnason, Logan Huffman, Benedikt Erlingsson, Stefan Schaefer, Steve Schirripa, Jóhann G. Jóhannsson, Sharon Angela, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Örn Árnason. Ólafur Jóhannesson leikstýrir eftir handriti þeirra Stefans Schaefers. Áður unnu þeir að handriti Stóra plansins sem Ólafur leikstýrði. Ólafur er einnig leikstjóri kvikmyndanna The Truth About Queen Raquela og Africa United. Þættirnir eru framleiddir af Poppoli kvikmyndafélaginu í samstarfi við Cicala Filmworks, og eru teknir upp á Íslandi og í New York. Hér má sjá fyrsta þáttinn.
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira