Hagræða með milljarða kaupsamningi 3. desember 2009 07:00 Hafnarfjarðarbær hefur nú eignast skólahús, tvö íþróttahús og leikskólabyggingu og sparar sér með því nær 200 milljónir króna á ári næstu 16-17 ár.fréttablaðið/gva
Hafnarfjarðarbær hefur keypt fjórar fasteignir úr þrotabúi Nýsis hf. fyrir um 3,8 milljarða króna. Áður leigði bærinn þessar byggingar og rekstur þeirra af Nýsi. Kaupin og lok leigusamnings við Nýsi mun spara bænum gríðarlegar fjárhæðir, að sögn Lúðvíks Geirssonar bæjarstjóra. „Það voru sextán til sautján ár eftir af þessum samningum,“ segir Lúðvík Geirsson. „Bara hagræðingin af leigu- og rekstrarsamningunum er hátt í 200 milljónir króna á næsta ári. Þetta er stórmál fyrir sveitarfélagið.“ Byggingar sem nú eru orðnar eign bæjarins en Nýsir átti áður eru skólahúsið í Lækjarskóla, íþróttahús Lækjarskóla, Íþróttamiðstöðin Björk í Haukahrauni og leikskólinn Álfasteinn á Hvaleyrarholti. Nýsir og Hafnarfjörður sömdu um það árið 2001 að Nýsir byggði þessi hús og annaðist rekstur þeirra í 25 ár gegn því að bærinn greiddi leigu. Nýsir varð hins vegar gjaldþrota í október á þessu ári eftir að tilraunir til að endurskipuleggja rekstur fyrirtækisins báru engan árangur. Meðan þær tilraunir stóðu yfir leysti bærinn til sín rekstrarsamningana. Samningar um fasteignirnar náðust svo nýlega. Landsbankinn fjármagnar kaupsamninginn fyrir bæinn. Bankinn er einn stærsti kröfuhafinn í þrotabú Nýsis. Bæjarstjórinn segir að þessi sparnaður sé langstærsti liðurinn í þeirri hagræðingu sem bærinn þurfi að ná fram vegna næsta árs. Ekki sé ólíklegt að þarna náist 15-20 prósent af heildarhagræðingu næsta árs. „Það segir okkur hversu óhagstæðir þessir samningar voru á sínum tíma. Framreiknað út samningstímann þýðir þetta 1,5-2 milljarða í sparnað fyrir bæinn. Að auki eigum við nú byggingarnar,“ segir Lúðvík. Enn eru í gildi einkaframkvæmdarsamningar sem Hafnarfjarðarbær gerði fyrir 2002 við fyrirtækið Fjarðarhús um rekstur tveggja leikskóla og eins grunnskóla í Hafnarfirði. „Við höfum líka kallað eftir því að komast yfir þá samninga,“ segir Lúðvík, „en það hefur ekki náðst saman um það.“ Samningarnir við Fjarðarhús eru hins vegar talsvert hagstæðari bænum en samningarnir við Nýsi, segir Lúðvík. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent Fleiri fréttir Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Sjá meira