Innlent

Fækkar í röðum skrifstofufólks

við skrifstofustörf Fækkun hefur orðið á skrifstofufólki í VR.
við skrifstofustörf Fækkun hefur orðið á skrifstofufólki í VR.

Innan við fimm prósent félagsmanna í VR skilgreina sig sem skrifstofufólk samkvæmt nýrri launakönnun félagsins. Fyrir fimm árum töldust rúm tíu prósent félagsmanna til skrifstofufólks.

Á sama tíma hefur fjölgað í hópnum stjórnendur/sérfræðingar, úr rúmum 36 prósentum í tæp 42 prósent.

Í frétt frá VR segir að sérhæfing meðal félagsmanna hafi aukist mjög á undanförnum árum. Til marks um það eru ofangreindar breytingar og sú staðreynd að fyrir fimm árum kváðust nítján prósent félagsmanna starfa við sölu- og afgreiðslustörf en í dag er það hlutfall sextán prósent.

Samkvæmt frétt VR verða heildarniðurstöður launakönnunar VR kynntar um miðjan september.

- bþs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×