Innlent

Samið um launahækkun starfsmanna HS Orku

Starfsmannafélag Suðurnesja, Starfsmannafélag Hafnarfjarðar og Starfsmannafélag Vestmannaeyjabæjar hafa undirritað og samþykkt nýjan kjarasamning við HS Orku hf.

Síðasti gildandi kjarasamningur framlengist til 31. desember 2010 með þeim breytingum og fyrirvörum sem í hinum nýja samningi eru.

Samningurinn er á svipuðum nótum og þeir samningar sem samþykktir hafa verið á undanförnum mánuðum. Við gildistöku sem er frá 1. maí 2009 hækka laun um 7.750 krónur, 1. nóvember um 1.75 prósent og 1. júní 2010 um 2.5 prósent.

Samningurinn var kynntur samtímis fyrir félagsmönnum í félögunum þremur í gær og að kynningu lokinni fór fram sameiginleg atkvæðagreiðsla. Alls greiddu 60 félagsmenn atkvæði, já sögðu 49, nei sögðu 10 og einn seðill var auður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×