Valin á virta stuttmyndahátíð 22. desember 2009 06:00 Hæfileikaríkur Hornfirðingur Stuttmynd Hlyns Pálmasonar hefur verið valin til að taka þátt í kvikmyndahátíð í Frakklandi.
Vefsíðan rikivatnajokuls.is greindi frá því fyrir skemmstu að stuttmynd í leikstjórn Hlyns Pálmasonar hefði verið valin á árlega stuttmyndahátíð í Clermont í Frakklandi sem er ein af virtustu kvikmyndahátíðum Evrópu. Stuttmyndin ber heitið Jóel og fjallar hún um unglingsstrákinn Jóel sem reynir að komast inn í krossaraklíku. Hlynur Pálmason hóf nám í leikstjórnun við Danska kvikmyndaskólann í haust. Hann segist lítið hafa vitað um hátíðina áður en hann sendi eintak af myndinni út til aðstandenda hennar. „Ég frétti það bara seinna að þetta væri ein af virtustu hátíðunum í Evrópu,“ segir Hlynur, en stuttmyndin Jóel mun keppa í flokki alþjóðlegra mynda. Hlynur hefur fengið frí í skólanum til að vera viðstaddur hátíðina í lok janúar en fer einn síns liðs þar sem kærasta hans er í prófum á sama tíma. „Ég er mjög spenntur. Ég er nýbúinn að tala við einn sem hafði farið á þessa hátíð og hann sagði að þetta væri mjög skemmtilegur viðburður.“ Jóel er ekki fyrsta stuttmynd Hlyns því hann hafði áður gert myndina Posted sem vann til verðlauna hér heima og var að auki sýnd í Sjónvarpinu. Spurður hvort fleiri myndir séu í bígerð segir Hlynur svo vera. „Skólinn tekur mikinn tíma þessa dagana en ég er að undirbúa annað verkefni sem mig langar að fara af stað með í sumar. Núna er ég bara að reyna að finna nægilegt fjármagn til að láta það verða að veruleika,“ segir Hlynur að lokum.- sm
Mest lesið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Lífið „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Bryndís Líf orðin móðir Lífið Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Kokkakonur „kjafta, skála og knúsa“ í nýjum samtökum Matur Fleiri fréttir „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ Sjá meira