Hafró fann lítið af loðnu 22. desember 2009 01:00 Þess virðist langt að bíða að sjómenn fái alvöru loðnuvertíð. fréttablaðið/óskar p. friðriksson MYNDÓPF
Árlegri loðnumælingu Hafrannsóknastofnunar að haustlagi er lokið og niðurstöður gefa ekki tilefni til þess að leggja til loðnukvóta á komandi vetrarvertíð. Lítið mældist af fullorðinni loðnu sem og ungloðnu. Ungloðna fannst á stóru svæði en lóðningarnar voru víðast gisnar og engar þéttar torfur sáust. Haustið 2008 fannst mikið af loðnuseiðum á þessum tíma og var vonast til að sá árgangur myndi skila sér sem eins árs fiskur í mælingunni nú. Sú varð þó ekki raunin og fjöldi eins árs ungloðnu mældist verulega undir því marki að hægt sé að mæla með upphafskvóta fyrir vertíðina 2010-2011. Stórrar loðnu varð vart í litlu magni við og uppi á landgrunnskantinum frá Langanesi og vestur undir Kolbeinseyjarhrygg. Veiðistofninn, sem er tveggja og þriggja ára fiskur, mældist um 140 þúsund tonn. Aflaregla í loðnu gerir ráð fyrir að 400 þúsund tonn séu skilin eftir til að hrygna þannig að ekki er unnt að leggja til loðnukvóta fyrir komandi vetrarvertíð á grundvelli þessara mælinga. Undanfarin ár hefur ekki tekist að mæla stærð veiðistofns loðnunnar fyrr en í janúar eða jafnvel fyrri hluta febrúar. - shá
Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira