Innlent

Hált á Holtavörðuheiði og víðar

Á Vesturlandi eru hálkublettir í Svínadal en hálka á Holtavörðuheiði og á Laxárdalsheiði. Á Vestfjörðum eru hálkublettir á örfáum köflum en snjóþekja á Steingrímsfjarðarheiði. Vonast er til að Hrafnseyrarheiði verði fær fyrir hádegi.

Hálkublettir eru á Ströndum. Það er hálka, krapi og snjóþekja á Norðurlandi og þoka við Eyjafjörð. Hálkublettir eða snjóþekja er á Norðausturlandi, bæði yfir fjöllin og eins með ströndinni frá Öxarfirði að Vopnafirði - og á Vopnafjarðarheiði. Hálkublettir eru á Vatnsskarði eystra og snjóþekja á Breiðdalsheiði en vegir á Austurlandi eru þó víðast hvar auðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×