Ekkert bílasalavæl frá SSSól 13. júní 2009 06:00 Mættir í Stúdíó Sýrland á gömlu rokkbomsunum til að taka upp nýtt efni sem stendur á gömlum merg.fréttablaðið/arnþór
Helgi Björnsson er að ræsa hljómsveitina SSSól sem hann líkir við Kröflu. Og sér við Ferguson. Hann hefur úr slíkri breidd að spila að hann getur skipt inn á í bandið eftir hentugleika. „Það er búið að setja startkapla á skrímslið. Ræsa Kröflu. Við erum að taka upp nýtt efni," segir Helgi Björnsson, söngvari SSSólar. Fréttablaðið náði tali af Helga í alveg banastuði í Stúdíó Sýrlandi þar sem SSSól var að taka upp nýtt lag. Viðtalið sveiflaðist milli þess að Helgi svaraði blaðamannslegum spurningum og þess að hann syngi hendingar úr þessu nýjasta lagi sem verið var að taka upp og heitir Fullorðinn en meiningin er að það fari í spilun strax í dag. Frumflutt í morgunþætti Simma og Jóa á Bylgjunni í dag: „Dansa frá mér allt vit," syngur Helgi og upplýsir jafnframt að þetta sé gamall texti úr smiðju Davíðs Þórs Jónssonar við Stónslegan slagara eftir sig sjálfan. Helgi fer ekki í grafgötur með hvaðan áhrifin eru. „... á morgun er ekkert samviskubit... Ég er fullorðinn, ef mér sýnist fer ég út að leika mér... Já, sko, þetta er alvöru „rock'n'roll". Ekkert bílasalavæl eins og oft hefur heyrst á þessum popplendum." Helgi er í essinu sínu í stúdíóinu og yfirlýsingaglaður eftir því. Vogar sér jafnvel inn á jarðsprengjusvæði sem það að texti lagsins fjalli meðal annars um inngróið en óþarft samviskubit nútímakarlsins. SSSól hefur verið lengi að og Helgi er ánægður með sitt band. Líkir sjálfum sér við Ferguson stjóra Manchester United í þeim skilningi að hann búi við slíka breidd afbragðs hljóðfæraleikara að hann geti skipt inná eftir þörfum. SSSól ætlar að koma fram í Officeraklúbbnum í kvöld og er að bóka gigg vítt og breitt um landið. Njálsbúð 4. júlí - sveitaball eins og þau voru best fyrir tíu eða tuttugu árum. Þegar fitjað er upp á því við Helga hvort sveitaböllin tilheyri liðinni tíð er það nánast eins og að spyrja Þorstein frá Hamri hvort ljóðið sé ekki örugglega dautt? „Þetta hefur ekki brugðist í þau skipti sem SSSól hefur poppað upp. Þá streymir fólkið inn. Þó ekki sé búið að taka mynd af hljómsveitinni í níu ár. Fyrr en nú," segir Helgi og hlær. En neitar því þó ekki að vissulega hafi komið ákveðið bakslag í sveitaballamenninguna. „Ég held jafnvel að þetta „meika"ða-í-útlöndum" hafi gert hinn íslenska alþýðulistamann eitthvað feiminn. Hann hafi farið inní sig í stað þess að láta ljós sitt skína af festu og einurð. En með breyttri fjárhagsstöðu þjóðarinnar og fækkandi utanlandsferðum hlýtur alþýðulistamaðurinn að fá aukna trú á mátt sinn og megin... Ég þarf ekki að biðja neinn um leyfi nema sjálfan mig," syngur Helgi Björnsson.
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Fleiri fréttir Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ Sjá meira