Urðu veikar af þorramat 5. júní 2009 06:00 jóhannes viðar bjarnason Þátttakendur í Britain´s Next Top Model litu inn á Fjörukrána í vetur.fréttablaðið/pjetur „
Þær voru ekkert sérstaklega hrifnar af hákarlinum,“ segir Jökull Þorri Samper, starfsmaður Fjörukráarinnar. Þáttur í raunveruleikaseríunni Britain"s Next Top Model, sem var tekinn upp á Íslandi í vetur, var nýverið frumsýndur í Bretlandi. Í honum fóru fyrirsæturnar á Fjörukrána þar sem þær áttu að borða þorramat fyrir framan myndavélarnar og segja á sama tíma: „Hollt og gott og best í heimi“ með bros á vör. Ekki gekk allt sem skyldi og köstuðu sumar þeirra upp í klósettið, enda maturinn afar framandi í þeirra augum. „Þetta er ekki beint það sem þær borða mest,“ segir Jökull. „Einhverjar af þeim eru grænmetisætur og þær táruðust bara þegar þær sáu þetta. En þær voru mjög rólegar og fínar en það var smá dramatík í kringum þær. Ég held samt að mikið af því hafi verið hálfgert leikrit fyrir myndavélarnar.“ Jökull á enn eftir að sjá þáttinn og hlakkar til að sjá útkomuna. „Britain"s Next Top Model er ekki beint það sem ég horfi á í sjónvarpinu en það væri allt í lagi að sjá hvernig þetta kemur út.“ Jóhannes Viðar Bjarnason, eigandi Fjörukráarinnar, segir að þrátt fyrir óbragðið sem maturinn skildi eftir sig hjá fyrirsætunum hafi þær verið ánægðar með móttökurnar sem þær fengu. „Þær voru bara mjög ánægðar með veru sína hérna.“ Stúlkurnar snæddu einnig kvöldverð í Perlunni þar sem einhverjar kvörtuðu yfir súpunni. Svo virðist því sem íslenskur matur hafi engan veginn höfðað til þeirra, þrátt fyrir að breskur matur hafi seint verið talinn sá gómsætasti í heimi. - fb
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM Tíska og hönnun Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ Sjá meira