Færri hross en dýrari flutt úr landi á árinu 28. desember 2009 05:00 Napurt getur verið á klakanum jafnvel þótt menn og skepnur séu í vetrarbúningi. Ómögulegt er samt að segja hvað þessum hér að ofan þætti um að komast til útlanda, enda óvissa um veðurfar á áfangastað. Fréttablaðið/Anton
Á árinu voru flutt út 1.589 hross samkvæmt nýjustu útflutningstölum Bændasamtakanna. Þetta er heldur minna en í fyrra, en þá varð mikil aukning. Samdráttur milli ára nemur 10,5 prósentum, en aukningin milli áranna 2007 og 2008 nam nærri fimmtungi. Hallveig Fróðadóttir, sem heldur utan um útflutningstölurnar fyrir Bændasamtökin, segir fjöldann í ár sambærilegan við það sem gerðist í hittiðfyrra. „Sprengingin í fyrra varð náttúrlega út af hruninu hjá okkur. Þá varð aukning um 280 hross og hún kom öll á síðustu þremur mánuðum ársins,“ segir hún. Kaupendur nýttu sér þá veikara gengi krónunnar. Kristbjörg Eyvindsdóttir, hrossaræktandi og -útflytjandi, segir útflutningsmarkað með hross nokkuð öflugan, en líkt og annars staðar þá leiti hann jafnvægis. „Við verðum að gera okkur grein fyrir því að það er líka kreppa erlendis,“ segir hún og telur það til marks um nokkurn „varnarsigur“ að samdrátturinn hafi ekki orðið meiri milli ára. „Á margan hátt er betur að þessu staðið en áður og meiri fagmennska, bæði hvað varðar tamningu og skráningu,“ segir Kristbjörg og bendir á að magntölur nú segi ekki alla söguna, vera kunni að fluttir séu út dýrari hestar líka, tölur um verðmæti útflutningsins bendi til þess. „Þar er kannski mesta sóknarfærið, því kaupendur fá betri hross fyrir sömu upphæð og áður.“ Undir þetta tekur Kristinn Guðnason, formaður Félags hrossabænda, en hann segir mest flutt út af hrossum sem hægt sé að nota í einhverja keppni. „Svo er alltaf eitthvað flutt út af merum og graðhestum,“ segir hann. Mörg ár séu hins vegar síðan hross hafi verið flutt út til slátrunar. Nokkuð sé þó flutt út af hrossakjöti. Bændasamtökin eiga samfelldar tölur um útflutning frá árinu 1988. Þá voru flutt út 700 hross. Útflutningurinn náði svo hámarki á árunum 1994-1996 þegar hann nálgaðist 3.000 hross á ári. Við tók samdráttur næstu sjö ár og sveiflukenndari útflutningur upp frá því. Frá 1988 hafa verið flutt úr landi 34.095 hross, eða 1.550 hross að jafnaði á ári hverju. olikr@frettabladid.is
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira