Dæmi um að fólk vilji borga með íbúðum sínum 11. febrúar 2009 12:16
Fasteignasalar þekkja dæmi þess að fólk vilji borga með íbúðum sínum til að losna við skuldirnar. Ekki er þó vitað til þess að slíkir samningar hafi gengið í gegn. Í fréttum Stöðvar tvö í gær var rætt við Karl Eggertsson fjölskylduföður á Akranesi sem auglýsti einbýlishús sitt á Skaganum í smáauglýsingum Fréttablaðsins undir yfirskriftinni: Vantar þig milljón krónur? Húsið er röskir tvöhundruð fermetrar og fæst sum sé gegn yfirtöku um 40 milljóna króna skulda og milljón í vasann. Fréttastofa hefur rætt við fasteignasala sem segja dæmi þess frá bankahruni að fólk hafi leitað til þeirra og viljað reyna að selja með svipuðum skilmálum og Karl, það er að borga með íbúðinni til að losna við skuldir. Eftir því sem fréttastofa kemst næst hafa slíkar sölur ekki gengið í gegn, enda ekki margar eignir sem seljast þessa dagana þar sem um 80% samdráttur hefur orðið í sölu fasteigna á einu ári. Og þegar staðan verður slík að skuldir eru vaxnar verðmæti íbúðar yfir höfuð er enginn hægðarleikur að losna við eignina. Eins og einn fasteignasali útlistaði fyrir fréttastofu er fólk þá gjarnan komið í sjálfheldu. Segjum að íbúð sé metin á 30 milljónir en skuldirnar hafa vaxið í 33 milljónir. Vilji einhver kaupa á 30, þarf hann að hafa aðgang að veði á annarri eign, því ekki má íbúðin vera veðsett í topp. Og ef seljandinn ætlar að flytja með sér skuld upp á 3 milljónir, þarf hann einnig að finna veð fyrir þeim milljónum. Í svona stöðu eru því allar líkur á að fólk geti sig hvergi hrært. Fasteignasalar sem fréttastofa ræddi við könnuðust ekki við að svona sölur hefðu gengið í gegn.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira