Telja sig hlunnfarna um milljarða í Noregi 17. júlí 2009 05:45 norskur olíuborpallur REM Offshore er norskt skipafyrirtæki sem sér um að þjónusta olíuborpalla. Tveir stærstu hluthafarnir ætluðu að skipta með sér fjórtán skipum félagsins og sjóði upp á 16 milljarða íslenskra króna.fréttablaðið/afp
Lögbannskröfu Olympic og Kaldbaks, sem er í eigu Samherja, á hendur norska skipafyrir-tækinu REM Offshore ASA var hafnað af norskum héraðsdómi á miðvikudag. Þegar er búið að kæra úrskurðinn. Deilurnar snúast um að tveir stærstu eigendur REM hafa gert með sér samning um að skipta á milli sín fjórtán skipum félagsins og sjóði að verðmæti 16 milljarðar íslenskra króna án samþykkis allra hluthafa. Mikið hefur verið fjallað um málið í norskum fjölmiðlum. „Viðskiptin eru án fordæma og hnoðuð saman af slægustu lögfræðingum Noregs og eru stórsvig milli helstu lagaákvæða um jafnræði hluthafa og minnihlutavernd,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja. REM Offshore er þjónustufyrir-tæki fyrir olíuborpalla víða um heim. Tveir stærstu eigendurnir eru Solstad og Åge Remøy, sem jafnframt er stofnandi og stjórnandi REM. Solstad á um 49 prósent af félaginu og ætlar að taka út helming eigna fyrirtækisins að verðmæti yfir 60 milljarðar og borga fyrir með hlutabréfaeign sinni. Åge eignast þá um 77 prósent í fyrirtækinu. „Þannig fer Åge yfir 40, 50 og 67 prósenta mörkin án þess að gefa öðrum möguleika á að fá út sín hlutfallslegu verðmæti með yfirtökutilboði eins og venjan er með skráð félög,“ segir Þorsteinn. Uppskiptin fengu ekki samþykki allra hluthafa á aðalfundi heldur einungis rúmlega tveggja þriðju hluta jafnvel þótt um sé að ræða að einn hluthafi taki út um helming eigna félagsins. Kaldbakur, sem á 6,4 prósent hlut í félaginu, gerði á sínum tíma yfirtökutilboð í REM ásamt Åge Remøy. Solstad vildi hins vegar ekki selja og sat áfram með rúmlega 40 prósent hlut. „Við höfum stutt dyggilega við Åge og vörnuðum því á sínum tíma að keppinauturinn Solstad næði að taka yfir félagið,“ segir Þorsteinn en Kaldbakur fékk í byrjun ársins tilboð um að selja sinn hlut á um 1.000 íslenskar krónur á hlut. „En við ákváðum að selja ekki af tillitssemi við Åge en hann taldi að Solstad stæði að baki því tilboði. Hins vegar kom á daginn að Åge hafði snúið sér við og samið um uppskipti á félaginu við Solstad. Það er alveg ljóst að Åge hefur svikið Kaldbak,“ segir Þorsteinn. Stig Remøy fer fyrir Olympic, hinum lögbannsbeiðandanum, sem á um 4,3 prósent í REM Offshore. „Stig stendur algjörlega með okkur, þrátt fyrir að þeir séu bræður. Olympic og Kaldbakur hafa náð góðu samstarfi um þetta verkefni,“ segir Þorsteinn. vidirp@frettabladid.is
Mest lesið Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent Mælti sér mót við barn og réðst á það Innlent Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Innlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Innlent Fleiri fréttir Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Sjá meira
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent