Biðlaun fara yfir sex milljónir 23. desember 2009 05:00 Á íbúafundi á Álftanesi Bæjarfulltrúar á Álftanesi ræddu um stöðu sveitarfélagsins á opnum íbúafundi í síðustu viku. Fréttablaðið/Valli
Sigurður Magnússon, sem hætti sem bæjarstjóri á Álftanesi í september, á að fá átta mánaða biðlaun samkvæmt ráðningarsamningi frá 2006. „Samkvæmt ráðningarsamningi Sigurðar á hann að fá greidd tveggja mánaða biðlaun fyrir hvert byrjað ár sem bæjarstjóri,“ útskýrir Kristinn Guðlaugsson, forseti bæjarstjórnar Álftaness. Starfslok Sigurðar hafa verið til umræðu í bæjarráði og bæjarstjórn að undanförnu án þess að málið hafi verið afgreitt. Núverandi meirihluti telur nóg að Sigurður fái sex mánaða biðlaun. Vegna breytinga á ráðningarsamningnum frá í vor hefði það orðið niðurstaðan ef Sigurður hefði klárað kjörtímabilið í bæjarstjórastólnum. Sjálfur leggur Sigurður fram lögfræðiálit um að hann eigi að fá átta mánaða biðlaun. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hverjar greiðslurnar til Sigurðar eiga nákvæmlega að vera. Samkvæmt ráðningarsamningi frá 2006 og þróun launavísitölu síðan ættu föst mánaðarlaun hans sem bæjarstjóri að vera um 800 þúsund krónur. Átta mánaða greiðsla myndi þannig nema um 6,4 milljónum. Þar fyrir utan hefur Sigurður fengið ýmsar aðrar greiðslur, til dæmis lífeyrisgreiðslur og fyrir akstur og síma- og tölvukostnað. Auk biðlaunanna fær Sigurður um 95 þúsund á mánuði fyrir að vera í bæjarráði og bæjarstjórn og 25 þúsund að auki fyrir hvern fund sem hann sækir þar. - gar
Mest lesið „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Innlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Erlent Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Erlent Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja Innlent Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Erlent „Þjóðin á rétt á að vita“ Innlent Fleiri fréttir Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Ótímabært að hafa áhyggjur af áhrifum mögulegs verkfalls á sjúkraflug „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ „Þjóðin á rétt á að vita“ Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja „Í þessu máli þá sat viðkomandi ekki skemur í fangelsi vegna lagabreytingarinnar“ „Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það“ Best að vera ekki með stórar yfirlýsingar Dómari kannar aðbúnað barna í vist á einkaheimilum Dómsmálaráðherra svarar gagnrýni á reynslulausn Uppsögn kjarasamninga geti verið óhjákvæmileg Rafmagnslaust í Mosfellsdal Vara við vasaþjófum á Norðurlandi eystra Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Magnús Már nýr framkvæmdastjóri Áss „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Tilkynnt um alblóðugan mann á gangi í miðborginni Vara við að erlendir aðilar gætu náð yfirráðum yfir íslenskum sjávarútvegi Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Ökumenn beðnir um að sýna aðgát vegna fýlsunga Frá hrifningu til vonbrigða: Svona upplifðu borgarbúar almyrkvann Rafmagnslaust í Mosfellsbæ og Grafarvogi Sé verið að senda röng skilaboð til „kaldrifjaðra morðingja“ Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Forskot Já-hliðarinnar mælist minna ESB-málin í brennidepli og uppgjör eftir almyrkvann Einn handtekinn vegna gruns um líkamsárás og hótanir Sjá meira