Eignir Baldurs Guðlaugssonar kyrrsettar 17. nóvember 2009 18:29
Sérstakur saksóknari hefur krafist kyrrsetningar á eignum Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, í tengslum við rannsókn á meintum innherjaviðskiptum Baldurs þegar hann seldi hlutabréf sín í Landsbankanum rétt fyrir hrun. Þetta er í fyrsta sinn sem sérstakur saksóknari beitir slíkri heimild. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur embætti sérstaks saksóknara nú fengið kyrrsetningu í eignum Baldurs Guðlaugssonar vegna söluandvirðis hlutabréfanna í Landsbankanum sem Baldur Guðlaugsson seldi hinn 17. september 2008, en hann seldi þá hlutabréf í bankanum fyrir á annað hundrað milljónir króna. Um er að ræða kyrrsetningu á sömu fjárhæð og Baldur seldi fyrir. Grunur leikur á að Baldur hafi verið innherji í skilningi laga um verðbréfaviðskipti þegar hann seldi hlutabréfin, en innherjasvik geta varðað allt að sex ára fangelsi. Rúmum tveimur vikum áður en Baldur seldi bréfin, hinn 2. september 2008, sat hann fund í Lundúnum með Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands. Þar var flutningur á Icesave-reikningum Landsbankans frá útibúi til dótturfélags til umfjöllunar og Baldur var þar sem fulltrúi fjármálaráðherra. Heimildin sem embætti sérstaks saksóknara beitti til að kyrrsetja eignir Baldurs kemur fram í lögum um meðferð sakamála, en heimildinni má beita ef hætta þykir á að eignum verði ella skotið undan eða þær glatist eða rýrni. Nokkrum vikum eftir bankahrunið hóf FME rannsókn á sölu hlutabréfanna. Miðaði athugun eftirlitsins að því að skera úr um hvort Baldur hefði búið yfir innherjaupplýsingum um stöðu Landsbankans, meðal annars í krafti stöðu sinnar sem ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, þegar hann seldi bréfin. Það var síðan niðurstaða FME að kæra málið til sérstaks saksóknara. Baldur hefur sjálfur ítrekað neitað því að hafa haft aðrar upplýsingar um rekstur Landsbankans en þær sem voru aðgengilegar almenningi þegar hann seldi bréfin.
Mest lesið Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Innlent „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Innlent Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Innlent „Gjörsamlega samfélagslega ótækt“ að hafna kröfunni Innlent Reglulega tilkynnt um þjófnað á vatni Innlent Fleiri fréttir Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Magnús Þór sjálfkjörinn Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Selfyssingar í 60 plús heilsueflingu klárir í jólin Skoða að koma á ferjusamgöngum milli Skotlands og Seyðisfjarðar Viðreisn gæti reynst í lykilstöðu milli blokkanna Barnavernd fylgist með fleiri ófrískum konum í neyslu en síðustu ár Fleiri óléttar konur í neyslu á borði barnaverndar og spennandi kosningar framundan Langvarandi einangrun ungrar konu gagnrýnd af Amnesty Selfoss stöðvaður í Bretlandi Þrettán nýir rafknúnir strætisvagnar teknir í notkun Zuism tekið af trúfélagaská eftir áralöng svik og pretti Mun áfram leiða lista Framsóknar í Múlaþingi Töpuðu 133 milljónum króna á kosningaári Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Samþykktu tillögu um uppbyggingu á Sorpu-lóð við Dalveg Spurningum Sigmundar Ernis svarað og málið ekki aftur í nefnd Þingstörfin á lokametrunum og styttist í jólafrí Naustin án bíla og eins og „löber“ með íslensku prjónamynstri Taka enn tuttugu þúsund króna beygju Ekið á kyrrstæðan bíl á Suðurstrandarvegi „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Áttu að taka tillit til þess að talsmaðurinn klikkaði Guðrún vinsælli en Agnes og traust til kirkjunnar á uppleið Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Björg býður ungliðum til fundar Verði húsið rifið verði fyrst að óska þess að friðun verði afnumin Sjá meira