Innlent

Fjórir meiddust í árekstri nálægt Hvammstanga

Fjórir meiddust, enginn þó alvarlega, þegar tveir bílar lentu í árekstri austan við Hvammstanga í gærkvöldi. Fólkið var flutt á heilsugæslustöðina á Blönduósi en bílarnir eru ónýtir.

Áreksturinn varð með þeim hætti að flutningabíll stóð kyrr á þjóðveginum þegar annar bílanna kom aftan að honum og hemlaði. Hinn bíllinn lenti þá aftan á honum og köstuðust þeir báðir út af veginum. Hálka var á vettvangi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×