Erlent

Taylor orðin góðhjörtuð á nýjan leik

Óli Tynes skrifar
Elísabet Taylor.
Elísabet Taylor.

Leikkonan Elísabet Taylor sagði frá því á Twitter síðu sinni í dag að hjartaaðgerð sem hún gekkst undir í vikunni hafi heppnast fullkomlega.

-Þetta er eins og að vera með nýja pumpu, segir leikkonan.

Hún skýrði fyrst frá því á Twitter síðu sinni á þriðjudag að hún væri að leggjast inn á sjúkrahús, sem hún nafngreindi þó ekki.

Elísabet Taylor er 77 ára gömul og hefur oft átt við veikindi að stríða. Hún var í áratugi ein dáðasta og elskaðasta leikkona heims.

Í fyrstu myndum sínum var hún kannski fyrst og fremst vinsæl fyrir hvað hún var forkunarfögur.

Þegar árin færðust yfir hana sýndi hún hinsvegar að hún var einnig hörku leikkona.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×