Óttast lokun skurðstofu í Vestmannaeyjum 16. apríl 2009 18:00 Elliði Vignisson bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
Elliði Vignisson bæjarstjóri Vestmannaeyja hefur sent Ögmundi Jónassyni heilbrigðisráðherra bréf vegna meintrar ákvörðunar ráðherrans um að skurðstofu í bænum skuli lokað í einn og hálfan mánuð í sumar. Í bréfinu kemur fram að bæjarstjórn hafi fundað með fulltrúum Heilbrigðisstofnunar fyrir fáeinum vikum þar sem þeir hafi sýnt sjónarmiðum heimamanna fullan skilning og tekið yrði tillit til þeirra í sparnaðaraðgerðum. „Vestmannaeyjabæ hafa ekki borist frekari fregnir hvað varðar lokun skurðstofu. Slíkt veldur talsverðum óþægindum því talsvert er leitað til Vestmannaeyjabæjar eftir svörum hvað þetta varðar," segir í bréfinu. Þá er bent á að hundruðir Eyjamanna hafi skrifað undir undirskriftalista með svohljóðandi forskrift: „Í sumar stendur til að loka skurðstofunni í Vestmanneyjum í um einn og hálfan mánuð. Með þeirri ákvörðun stjórnvalda verður nauðsynleg þjónustu skert til muna og öryggi bæjarbúa lagt í hættu. Sem dæmi þurfa barnshafandi konur og fjölskyldur þeirra að gera sérstakar ráðstafanir til þess að eiga börn sín í Reykjavík, leigja sér íbúð með tilheyrandi kostnaði eða vera upp á aðra komnar þar á þessum tímamótum í lífi sínu" Elliði segist taka undir hvert orð í þessari forskrift. Enn fremur minnir hann á þá miklu hættu sem lokun skurðstofu í Vestmannaeyjum hefur í för með sér fyrir íbúa og gesti. „Ég óska hér með eftir tafarlausum upplýsingum um það hvort að til standi að loka skurðstofunni við Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja í einhvern tíma í sumar. Sé svo hversu langan tíma verður þá þar um að ræða. Þá óska ég einnig eftir upplýsingum um það hvort afstaða læknaráðs Heilbrigðisráðs Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja liggi fyrir hvað varðar sumarlokun skurðstofu," segir Elliði í bréfinu.
Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Innlent Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Innlent Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Fleiri fréttir Fagna „heimkomu“ Baldurs eftir margra vikna fjarveru Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Sjá meira