Erlent

Mannskæð sprengjuárás í Írak

Að minnsta kosti 10 létust og margir slösuðust þegar tvær bílasprengjur sprungu á sama tíma í morgun fyrir utan opinbera byggingu í Írak. Árásin var gerð í borginni Ramadi sem er í vesturhluta landsins.

Fjölmargar árásir hafa verið gerðar á svæðinu í kringum borgina undanfarna mánuði. Í síðustu viku létust níu þegar rúta var sprengt í loft upp og þá dóu sex í sprengjuárás á götumarkað í Ramadi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×