Stjórnarformaður OR: Arðgreiðslan stendur 14. maí 2009 16:52 Guðlaugur Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur segir arðgreiðsluna standa. „
Við viljum borga eigendum okkar arð svo þeir geti sett peningin út í samfélagið," segir Guðlaugur Sverrisson stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur en trúnaðarmenn hennar hafa mótmælt harkalega 800 milljón króna arðgreiðslu á sama tíma og starfsmenn lækka í launum. Guðlaugur segir að ákvörðunin muni standa. Þá bendir Guðlaugur á að arðgreiðslan, sem var samþykkt síðustu áramót, hefði verið lækkuð úr 1,6 milljarði niður í 800 milljónir. Það var gert í samráði við eigendur Orkuveitunnar. Reykjavíkurborg fær meirihlutann af arðgreiðslunni eða tæp 94 prósent. Restin skiptist niður á Akranes og Borgabyggð. Spurður hvort það hafi komið til greina að greiða ekki út arðinn segir Guðlaugur að svo hafi verið. „En menn voru líka sammála því að sveitarfélögin þyrftu þetta fé vegna mikils niðurskurðar," segir hann. Guðlaugur segir að það hafi að sjálfsögðu ekki verið fyrirséð hvernig færi með launalækkanir starfsmanna og þá erfiðleika sem nú standa fyrir dyrum þegar ákvörðunin um greiðslunar voru teknar. „Við þurftum að lækka laun starfsmanna. Allir hafa þurft að taka á sig byrðar því annars hefði stefnt í uppsagnir," segir Guðlaugur um lækkun launa starfsmanna. Stjórnarfundur Orkuveitunnar verður haldinn á morgun. Spurður hvort ákvörðunin um endurgreiðslu verði endurskoðuð svarar Guðlaugur einfaldlega: „Hún stendur." Spurður um viðbrögð trúnaðarmanna starfsmanna Orkuveitunnar segir Guðlaugur að þau hafi komið sér á óvart. Ákvörðunin hafi legið fyrir síðan um áramót. „Ég tel að við eigum ekki í deilu við starfsfólk þó svo að trúnaðarmenn taki þetta upp núna," segir Guðlaugur að lokum.
Tengdar fréttir Kannast ekki við óánægju starfsmanna vegna arðgreiðslna Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, kannast ekki við óánægju meðal starfsmanna fyrirtækisins um arðgreiðslur OR til eigenda. Hann segir að fyrirtækið hafi greitt eigendum sínum arð í mjög langan tíma og árlega, nokkuð óháð því hver útkoma fyrirtækisins hafi verið fjárhagslega. 14. maí 2009 13:53 Arðgreiðslur ræddar á stjórnarfundi á morgun „Það er best að ég tjái mig ekki um þetta," sagði stjórnarmaður Orkuveitu Reykjavíkur, Kjartan Magnússon, um fyrirhugaðar arðgreiðslur til eiganda Orkuveitunnar upp á 800 milljónir. 14. maí 2009 15:51 Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Sjá meira
Kannast ekki við óánægju starfsmanna vegna arðgreiðslna Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, kannast ekki við óánægju meðal starfsmanna fyrirtækisins um arðgreiðslur OR til eigenda. Hann segir að fyrirtækið hafi greitt eigendum sínum arð í mjög langan tíma og árlega, nokkuð óháð því hver útkoma fyrirtækisins hafi verið fjárhagslega. 14. maí 2009 13:53
Arðgreiðslur ræddar á stjórnarfundi á morgun „Það er best að ég tjái mig ekki um þetta," sagði stjórnarmaður Orkuveitu Reykjavíkur, Kjartan Magnússon, um fyrirhugaðar arðgreiðslur til eiganda Orkuveitunnar upp á 800 milljónir. 14. maí 2009 15:51