Innlent

Arðgreiðslur ræddar á stjórnarfundi á morgun

Kjartan Magnússon segir arðgreiðslur væntanlega ræddar á morgun.
Kjartan Magnússon segir arðgreiðslur væntanlega ræddar á morgun.

„Það er best að ég tjái mig ekki um þetta," sagði stjórnarmaður Orkuveitu Reykjavíkur, Kjartan Magnússon, um fyrirhugaðar arðgreiðslur til eiganda Orkuveitunnar upp á 800 milljónir.

Trúnaðarmenn RSÍ, Eflingar, VM og Samiðnar sendu tilkynningu til borgarinnar þar sem þessi ákvörðun var hörmuð. Þeir segja að á sama tíma og stjórnin ákveði að greiða eigendum 800 milljóna arð í ár séu starfsmenn látnir taka á sig launalækkun og minnka við sig vinnu til að forðast uppsagnir.

Þá er þess krafist að Orkuveitan standi við umsamdar launahækkanir til starfsmanna í stað þess að lækka launin.

Sjálfur greiddi Kjartan atkvæði með fjárhagsáætluninni um áramótin þar sem samþykkt var að greiða arð til eigandanna. Þess má geta að arðgreiðslan er mun lægri en upphaflega stóð til. Þá skal því einnig haldið til haga að Orkuveitan tapaði rúmum 70 milljörðum á síðasta ári.

Þegar Kjartan er spurður hvort stjórnin hyggist bregðast við kröfum trúnaðarmanna þá tekur hann fram að Orkuveitan sé með stjórnarfund á morgun.

„Þetta verður væntanlega rætt þar," segir Kjartan.








Tengdar fréttir

Kannast ekki við óánægju starfsmanna vegna arðgreiðslna

Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, kannast ekki við óánægju meðal starfsmanna fyrirtækisins um arðgreiðslur OR til eigenda. Hann segir að fyrirtækið hafi greitt eigendum sínum arð í mjög langan tíma og árlega, nokkuð óháð því hver útkoma fyrirtækisins hafi verið fjárhagslega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×