Leikarar í fári vegna leka af fjöldapóstlista 14. maí 2009 04:00 Varar leikara eindregið við vafasömum prentmiðlum og sparar hvergi stóru orðin. „
Það var stjórnarfundur hjá félaginu í morgun [í gær] og það sem þar fór fram er trúnaðarmál,“ segir Björn Ingi Hilmarsson stjórnarmaður í Félagi íslenskra leikari (FIL). Fréttablaðið sagði af afar mikilli óánægju sem birtist í bréfi sem Edda Björgvinsdóttir setti á póstlista FIL þar sem hún varaði leikara við að tala við „vafasama prentmiðla” og á þar vísast við DV. Edda segir: „...það er komið algjörlega aftan að ykkur, þið gerð að fíflum og niðurlægð með samhengislausum, heimskulegum og villandi forsíðutexta og ömurlegum fyrirsögnum.“ Í öðru bréfi Eddu, sem Björn Ingi sendi áfram á póstlistann, undrast hún mjög að bréfið hafi ratað til fjölmiðla og vill meina að í örfrétt blaðisins þar sem vakin er athygli á óánægju sem birtist í fyrra bréfi sé gert lítið úr henni. Björn Ingi undrast mjög að þessi bréf séu í höndum Fréttablaðsins og telur um trúnaðarmál að ræða. Í seinna bréfi Eddu ítrekar hún þá skoðun sína að fjölmiðlar bókstaflega níðist á leikurum: „Við vitum öll um afar marga í okkar stétt sem hafa verið niðurlægðir oftar en einu sinni á forsíðum og baksíðum blaða og tímarita þegar þeir hafa látið tilleiðast að leyfa fjölmiðlafólki að opna sálarkirnur sínar, í þeirri von að vakin verði athygli á einhverju leikverki, bíómynd, námskeiði etc. sem okkur er uppálagt að standa við bakið á, m.a. með því að þiggja viðtöl í hinum ýmsu fjölmiðlum,“ skrifar Edda. Í klausu sem fylgir bréfinu upplýsir Björn Ingi félagsmenn um að málið verði tekið fyrir á stjórnarfundi. Í samtali við Fréttablaðið vill hann ekki upplýsa hvort ályktunar og/eða aðgerða sé að vænta frá félaginu. Hann lýsti jafnframt þeirri skoðun sinni að hann teldi fjöldapóst til félagsmanna FIL vera einkamál.
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Fleiri fréttir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Sjá meira