Innlent

Fimm prófkjör um helgina

Mikil kvennabarátta er um efstu sætin á lista Vinstri grænna í Reykjavík en úrslit úr prófkjörinu verða kunngjörð í kvöld. Prófkjör fyrir komandi alþingiskosningar eru víða um land í dag. Úrslit ráðast í fimm prófkjörum um helgina auk þess sem Framsóknarmenn í Reykjavík greiða atkvæði uppstillingu forvalsnefndar.

Samfylkingin efnir til netkosninga í öllum kjördæmum og lýkur prófkjörum flokksins í Suður- og Norðausturkjördæmi í dag. Fjöldi manna býður sig fram í efstu sæti í Norðausturkjördæmi, þeirra á meðal Kristján Möller samgönguráðherra, Sigmundur Ernir Rúnarsson fjölmiðlamaður, Logi Már Einarsson arkitekt, Agnes Arnardóttir atvinnurekandi og Benedikt Sigurðarson framkvæmdastjóri. Í Suðurkjördæmi eru tveir menn sem bjóða sig aðeins fram í fyrsta sætið, þeir Björgvin G. Sigurðsson þingmaður og Skúli Thoroddsen framkvæmdastjóri.

Klukkan níu í morgun hófst prófkjör hjá Framsóknarflokknum í Kraganum í félagsheimili flokksins við Digranesveg í Kópavogi og stendur það til klukkan sex. Tvær konur berjast þar um fyrsta sætið, þær Siv Friðleifsdóttir og Helga Sigrún Harðardóttir. Úrslitin úr því prófkjöri verða kynnt að líkindum í kvöld. Þá komu Framsóknarmenn í Reykjavík saman á aukakjördæmaþingi á Hilton Nordica í morgun og þar verður kosið um hvert sæti sem forvalsnefnd hefur stillt fólki upp í. Á morgun klukkan eitt verða svo kynntar niðurstöður úr póstkosningu Framsóknar í Suðurkjördæmi á Hótel Selfossi.

Prófkjör Vinstri grænna í Reykjavík hófst í morgun klukkan tíu á skrifstofu flokksins við Suðurgötu og hægt verður að kjósa til tíu í kvöld. Úrslitin verða kynnt undir miðnætti á kosningamiðstöð flokksins við Tryggvagötu. Þar er mikil kvennabarátta um toppsætin í kjördæmunum en meðal þeirra sem bjóða sig fram í fyrsta og annað sætið eru Kolbrún Halldórsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Katrín Jakobsdóttir, Svandís Svavarsdóttir, Lilja Mósesdóttir hagfræðingur og Anna Ólafsdóttir Björnsson. Meðal karla sem bjóða sig fram í toppsætin hjá Vinstri grænum í Reykjavík eru Árni Þór Sigurðsson og Ari Matthíasson. Þá verða úrslit úr póstkosningu Vinstri grænna í Suðurkjördæmi líklega kynnt síðdegis. Atli Gíslason þingmaður býður sig þar einn fram í fyrsta sætið en tvær sunnlenskar konur í annað sætið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×