Erlent

Skotbardagi í Puerto Rico

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
San Juan.
San Juan.

Sjö manns eru látnir og að minnsta kosti 25 særðir eftir skotbardaga sem átti sér stað í borginni San Juan í Puerto Rico í gær. Lögregla er ekki viss um hver undirrót bardagans var en grunar að þar hafi átök glæpagengja átt hlut að máli. Á meðal hinna særðu eru níu ára gömul stúlka og kona sem var ólétt en missti átta mánaða gamalt fóstur sitt þegar hún varð fyrir skoti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×