Lömdu gísl með járnröri og hentu brennandi klósettpappír í hann 18. ágúst 2009 16:20 Akureyri.
Piltur sem tveir karlmenn og kona tóku í gíslingu á Akureyri í síðustu viku þurfti að þola pyntingar og að vera laminn með járnröri. Þá köstuðu þau logandi klósettpappír í hann og settu því aðra íbúa í fjölbýlishúsi sem þau voru stödd í í stórhættu. Rannsókn lögreglunnar hefur gengið vel. Einn maður er grunaðir um að hafa haft sig mest frammi. Lögregla hefur lagt mikinn kraft í rannsóknina og liggur nú fyrir greinargóð mynd af atburðum. Síðan málið kom upp hafa starfað sleitulaust að henni lögreglumenn úr rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri og úr fíkniefnahóp lögreglunnar á Norðurlandi. Tveir karlmenn, annar á þrítugsaldri en hinn um fimmtugt, hafa setið í vikulöngu gæsluvarðhaldi vegna málsins. Þá sætti stúlka um tvítugt gæsluvarðhaldi fram á föstudaginn síðasta. Mennirnir tveir eru meðal annars grunaðir um frelsissviptingu, stórfellda líkamsárás og fjárkúgun. Samkvæmt því sem fram hefur komið við rannsóknina virðist yngri maðurinn vera höfuðpaurinn í málinu. Þáttur stúlkunnar virðist minni en hún er þó meðal annars grunuð um að hafa ekki komið manni í lífsháska til bjargar. Auk þeirra sem sættu gæsluvarðhaldi handtók og yfirheyrði lögreglan par á þrítugsaldri í síðustu viku, en ekki þótti ástæða til að fara fram á gæsluvarðhald yfir þeim. Þá hefur lögregla yfirheyrt fjölda vitna og aflað viðamikilla gagna. Atburðarásin virðist vera á þann veg að sunnudags kvöldið 9. ágúst var þolandinn í þessu máli, drengur um tvítugt, fenginn af heimili sínu og heim til höfuðpaursins í málinu. Þar var honum haldið næsta hálfa sólarhringinn. Höfuðpaurinn segist hafa ætlað að rukka drenginn um skuld, til komna vegna fíkniefna, en upphæð skuldarinnar er mjög á reiki. Ítrekað var gengið í skrokk á drengnum með höggum og spörkum um kvöldið og nóttina. Ekki var látið þar við sitja heldur var drengurinn einnig sleginn með járnröri í höfuðið og víðar um líkamann. Drengurinn mátti þola ýmsar ógeðfelldar niðurlægingar yfir nóttina og grófar hótanir. Lögregla rannsakar einnig hvort hinir grunuðu hafi gerst sekir um íkveikjutilraun og almannahættubrot þegar brennandi pappír var kastað að þolandanum, en íbúðin sem honum var haldið í er í fjölbýlishúsi. Að morgni mánudagsins hringdi þolandinn í foreldra sína og var reynt að láta hann kúga fé út úr þeim. Foreldrarnir snéru sér aftur á móti beint til lögreglu sem í framhaldi réðist til inngöngu í fjölbýlishúsið, frelsaði þar drenginn og handtók mennina tvo og stúlkuna. Drengurinn var með töluverða áverka og var fluttur beint á slysadeild. Gæsluvarðhald yfir mönnunum tveimur rann út í dag en eldri maðurinn hefur hafið afplánun vararefsingar. Lögreglan hefur farið fram á áframhaldandi gæslu yfir yngri manninum. Sá hefur játað sök að hluta en eldri maðurinn ber við minnisleysi um atburði. Mennirnir hafa báðir ítrekað komið við sögu lögreglu en þolandinn á litla sögu hjá lögreglu.
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Sjá meira