Þátttaka atvinnurekenda í stjórnun lífeyrissjóða verði endurskoðuð 2. september 2009 15:08
Sjómannafélag Íslands hvetur önnur stéttarfélög í landinu til að endurskoða þátttöku atvinnurekenda í stjórnum lífeyrissjóða. Í ályktun stjórnar sem samþykkt var í dag segir að við blasi að fjármunir flestra lífeyrissjóða séu eign launafólks en ekki atvinnurekenda. „Af þeim sökum telur Sjómannafélag Íslands fulltrúa atvinnurekenda ekkert erindi eiga í stjórnir þessara lífeyrissjóða. Fulltrúar launafólks eru að mati sjómannafélagsins best til þess fallnir að fjárfesta og varðveita fjármuni sjóðanna enda bera þeir augljóslega hag launafólks fyrir brjósti. Ekki verður séð að hagsmunir atvinnurekenda séu þeir sömu og sjóðsfélaga enda eru fjármunir sjóðanna ekki í eigu þeirra fyrrnefndu.," segir í ályktuninni. „Sjómannafélag Íslands varar við hugmyndum um stofnun sérstaks fjárfestingasjóðs á vegum lífeyrissjóðanna í landinu sem ætlað er að fjárfesta fyrir hönd lífeyrissjóðanna í framtíðinni. Verði af stofnun slíks fjárfestingasjóðs telur Sjómannafélag Íslands afar mikilvægt að haldið verði föstum tökum utan um fjárfestingar sjóðsins og að góðar tryggingar séu fyrir öllum útlánum hans. Saga undanfarinna missera hefur sýnt okkur að alls ekki hafi verið nógu vel staðið að rekstri og fjárfestingum fjölmargra lífeyrissjóða sem hafi leitt til tugmilljarða tjóns fyrir launþega í landinu," segir ennfremur. Að lokum er vakin athygli á því að æskilegt sé að sömu kröfur séu gerðar til stjórnenda lífeyrissjóða og annarra fyrirtækja. „Ef illa gengur þá eru það stjórnendur sem bera ábyrgðina. Yfirmenn lífeyrissjóða þiggja háar greiðslur fyrir störf sín fyrir sjóðina og eru þær margfalt hærri en meðallaun sjóðsfélaganna. Það ætti því að vera skýr krafa sjóðsfélaga að stjórnendur sjóðanna víki frá í þeim tilvikum þar sem miklir fjármunir hafa tapast og feli hæfari aðilum að halda um stjórnartaumana. Sjómannafélagið bendir á að menn fara yfirleitt best með eigið fé og því sé það farsælast fyrir launafólk í landinu að það sjálft ákveði alfarið hverjir stýra sjóðum þeirra."
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Fleiri fréttir Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Sjá meira