Innlent

Steingrímur ræddi Icesave málið við Bos í morgun

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra ræddi framgang Icesave málsins við Wouter Bos, fjármálaráðherra Hollands, á fundi í Istanbul í morgun. Þá segist hann hafa rætt stuttlega við Alistair Darling fjármálaráðherra Breta í gær þegar í ljós kom að ekki næðist þríhliða fundur með ráðherrunum. Steingrímur segir fundina tvímælalaust hafa verið gagnlega.

Steingrímur segir að hann og Wouter Bos hafi rætt ítarlega leiðir sem hægt væri að fara til að koma hreyfingu á málið. „Það verður svo unnið úr þeim hugmyndum og þær skoðaðar af lögfræðingum og sérfræðingum á bakvið," segir Steingrímur. Steingrímur segir að samkomulag um Icesave strandi á nokkrum atriðum. „Það eru ekkert mörg atriði en þau eru nokkur, sum stór og við fórum bara yfir það og ræddum mögulegar lausnir í því," segir Steingrímur.

Steingrímur segir það ekki gera mikið til þótt ekki hafi náðst sameiginlegur fundur með Bos og Darling því þjóðirnar vinni mjög þétt saman. „Og það eru nú Hollendingarnir ekki síður sem að þetta hefur verið í strandi gagnvart. Þannig að sennilegast er það nú mikilvægara að ná fundi með þeim," segir Steingrímur.

Steingrímur er staddur á ársfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem fer fram í Istanbul og segist Steingrímur skynja allstaðar í kringum sig áhuga á því að Icesave málið leysist. „Ekki bara í okkar samskiptum heldur er þetta vandamál mjög vel þekkt hér og það vita það allir að það er þetta mál sem hindrar framvindu mála hjá okkur. Það er alveg sama við hvern maður talar hér, að maður er spurður að því hvort maður sjái eitthvað til lands í þessu," segir Steingrímur.

Hann segir að allir líti svo á að forsenda þess að Ísland komist áfram með sín mál, til dæmis að áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verði endurskoðuð, sé sú að Icesave málið leysist.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×