Innlent

Bílvelta í Kömbunum - réttindalaus og grunaður um ölvun

Bíll valt í Kömbunum við Hveragerði um klukkan fjögur í nótt. Ökumaðurinn kastaðist út úr bílnum og lá fastur undir honum þannig að aðeins sást í hausinn þegar lögreglan kom á staðinn.

Maðurinn lá hins vegar á mosa og þegar bílnum var lyft upp kom í ljós að hann var nánast óslasaður. Maðurinn er réttindalaus og grunaður um ölvun við akstur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×