Brutust óvart inn í klukkubúð 9. mars 2009 10:00 Bræðurnir gengu inn í 10-11 án þess að vita að þar væri lokað. Myndin er af annarri verslun 10-11. „
Ég ætlaði að fara að kaupa mér kók og samloku," segir hinn rúmlega tvítugi Pálmi Þorsteinsson sem varð fyrir sérkennilegri uppákomu í nótt þegar hann gekk inn í 10-11 í Sporhömrum til þess eins að finna út að búðin var mannlaus. Í ljós kom að verslunin var lokuð og hafði verið síðan fyrsta mars. Með Pálma í för var bróðir hans en klukkan var að ganga fjögur um nóttina þegar þeir gengu inn. „Það var allt kveikt eins og vanalega, vörur í hillunni og svona, í fyrstu virtist ekkert undarlegt við þetta," segir Pálmi en sjálfur hefur hann verið atvinnulaus síðan í október en þá starfaði hann fyrir Eimskip. Að sögn Pálma kviknaði svo skyndilega á öryggiskerfinu þegar þeir voru komnir langleiðina inn í verslunina, þá hafi Pálma verið litið á afgreiðslukassana en sá engan þar að störfum. Það var þá sem hann áttaði sig á því að búðin var í raun mannlaus. „Ég stoppaði, ég vildi ekki fara lengra inn í búðina svo myndavélin myndi hafa mig í augnsýn allan tímann," segir Pámi sem þá fór að óttast að hann og bróðir hans gætu lent í vandræðum vegna verslunarferðarinnar, jafnvel verið sakaðir um innbrot. Stuttu síðar heyrði hann bíl bremsa með látum fyrir utan búðina. Þá var öryggisvörður frá Securitas kominn á vettvang til þess að handsama meintan þjóf. Pálmi segir að öryggisvörðurinn hafi litið á þá bræður og gripið í talstöðina sína. Þeir reyndu þá að segja honum að þeir höfðu ekkert illt í huga, þá langaði bara í samloku og kók, og þá helst borga fyrir vörurnar. „Hann var vantrúaður til að byrja með, síðan var hann alltaf að tala í talstöðina til skiptis," segir Pálmi sem þurfti að hafa sig allan við til þess að sannfæra öryggisvörðinn um að þeir væru engir innbrotsþjófar. Pálmi segist þó hafa haft fullan skilning á tortryggni varðarins, það er ekki á hverjum degi sem maður gengur inn í mannlausar búðir. „Að lokum komst hann að þeirri niðurstöðu að einhver hefði gleymt að læsa hurðinni," segir Pálmi sem þótti atburðir síðastliðinnar nætur heldur undarlegir. Honum hafi þó þótt málið frekar spaugilegt allt saman og bendir á að það sé svo sannarlega alltaf opið hjá 10-11. Forsvarsmenn 10-11 segja að starfsmaður hafi gleymt að læsa hurðinni. Búðin er hinsvegar starfandi á daginn en ekki með næturþjónustu eins og var fyrir fyrsta mars.
Mest lesið Tveir ferðamenn fundust látnir á Edition Innlent Frönsk kona grunuð um að bana dóttur sinni og eiginmanni Innlent Rannsaka „alvarlegt atvik“ á Edition Innlent Sigfús Aðalsteinsson: Trömpistinn sem vill bjarga Íslandi Innlent Tveir ríkisþingmenn skotnir á heimilum sínum Erlent Sinueldur kviknaði út frá brennandi rusli: „Erum pínulítið pirraðir á þessu“ Innlent Selja sinn sögufrægasta grip til að lifa af sumarið Innlent Flúði á brott eftir alvarlega líkamsárás Innlent Segir Íran hafa farið yfir strikið Erlent Spáir því að Fljótagöng verði næstu jarðgöng Innlent Fleiri fréttir Hin grunaða með stunguáverka og blindflug án samræmds námsmats Frönsk kona grunuð um að bana dóttur sinni og eiginmanni Sinueldur kviknaði út frá brennandi rusli: „Erum pínulítið pirraðir á þessu“ Tveir ferðamenn fundust látnir á Edition Meirihlutinn spari mínútur til að kasta klukkutímum á glæ Alvarlegt atvik á Edition og veiðigjaldafrumvarpið afgreitt úr nefnd Rannsaka „alvarlegt atvik“ á Edition Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Sigfús Aðalsteinsson: Trömpistinn sem vill bjarga Íslandi Bókun 35 aftur rædd fram á nótt Spáir því að Fljótagöng verði næstu jarðgöng Flúði á brott eftir alvarlega líkamsárás Selja sinn sögufrægasta grip til að lifa af sumarið Sofnaði undir stýri og svipt bílprófinu í hálft ár Benz brann í Breiðholti Minnihlutinn mætir ekki á morgun Vilja milljarð frá First Water sem hafnar vanefndum Allt á suðupunkti á Alþingi, árásir í Íran og fágætur flygill Selma nýr skólameistari á Króknum Hafa enga hugmynd hve lengi segulómstækið verður ónothæft Þórdís kemur Þorgerði til varnar: „Birtingarmynd pólitískra öfga“ Skúringatæki pikkfast utan á eina segulómtækinu á Hringbraut Stofnandi Viðreisnar segir Daða seilast í vasa almennings Burðardýr með þrettán kíló í farangrinum hlaut þungan dóm Sverrir Jónsson ráðinn skrifstofustjóri Alþingis Þyrlan afturkölluð og hinn slasaði sóttur á björgunarskipi Draga úr framkvæmdum um meira en fjórðung vegna rekstrarstöðvunar PCC Kæra utanríkisráðherra fyrir landráð Segja skellt á Skattinn og að „ofbeldi“ viðgangist í nefndinni „Kanntu ekki að skammast þín?“ Sjá meira