Tekist á um veru Guðlaugs á fundum borgarráðs 5. febrúar 2009 14:59 Guðlaugur Sverrisson skipaði 14. sæti á framboðslista Framsóknarflokksins við borgarstjórnarkosningarnar 2006.
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks vilja breyta samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar á þá vegu að kjörgengir varamenn í borgarráði séu þeir sem skipa sæti á framboðslista við seinustu borgarstjórnarkosningar. Í dag geta einungis borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar setið fundi borgarráðs. Varamaður Óskars er ekki varaborgarfulltrúi Upphaf málsins má rekja til meirihlutaskiptanna í ágúst á seinasta ári þegar Framsóknarflokkurinn myndaði á nýjan leik meirihluta með Sjálfstæðisflokknum. Marsibil J. Sæmundsdóttir, fyrsti varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins, styður ekki núverandi meirihluta. Guðlaugur G. Sverrisson var kjörinn varamaður Óskars Bergssonar, oddvita Framsóknarflokksins, í borgarráði. Guðlaugur skipaði 14. sæti flokksins í seinustu borgarstjórnarskosningum og telst því ekki til varaborgarfulltrúa. Tekist var á um málið í borgarráði í byrjun september 2008 og var málinu vísað til forsætisnefndar. Málið kom fyrst í dag á nýjan leik inná borð borgarráðs. Meirihlutinn lagði til á fundinum að þeir sem skipa sæti á framboðslista við síðustu kosningar geti setið fundi ráðsins. Án fordæmis „Í þessu máli er ekki deilt um kjörgengi varamanna til varamennsku í borgarráði heldur hvort að hver sem er af framboðslista flokka sé kjörgengur til varamennsku í borgarráði. Meginregla sveitarstjórnarlaga er að aðalmenn í sveitarstjórn skuli einungis kjörgengir sem aðalmenn og því eru engin fordæmi um það frá nokkru sveitarfélagi á Íslandi að aðrir en fyrstu varamenn viðkomandi lista séu kjörnir sem varamenn í bæjarráðum," segir í sameiginlegri bókun Samfylkingar og Vinstri grænna. Þar segir jafnframt að ákvæði sveitastjórnarlaga og laga um kosningar til sveitarstjórna séu ekki óskýr og að þau hafi aldrei verið túlkuð á þann veg sem meirihlutinn leggi nú til. Samgönguráðuneytið úrskurðar um réttmæti Í framhaldinu lögðu borgaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks fram bókun. „Með tillögu meirihlutans er verið að eyða þeim vafa sem óumdeilanlega er uppi um kjörgengisskilyrði varamanna í borgarráði." Meirihlutinn segir að tillagan muni fá hefðbundna meðferð í borgarstjórn og í framhaldi af afgreiðslu borgarstjórnar muni tillagan fara til samgönguráðuneytisins til staðfestingar, en málefni sveitastjórna heyra undir ráðuneyti samgöngumála.
Tengdar fréttir Vafamál hvort varamaður Framsóknar í borgarráði megi sitja þar Vafamál er að varafulltrúi Framsóknarflokksins sé kjörgengur til borgarráðs eftir því sem fram kemur í svari skrifstofustjóra borgarstjórnar. 4. september 2008 11:30 Áhyggjur minnihlutans angra Guðlaug ekki Á borgarráðsfundi í morgun var lagt fram álit skrifstofustjóra borgarstjórnar þar sem kemur fram að reglur varðandi gjaldgengi varamanna í borgarráði eru óljósar. 4. september 2008 15:41 Óskar áhyggjulaus yfir setu Guðlaugs í borgarráði Óskar Bergsson borgarfulltrúi Framsóknarflokksins segist engar áhyggjur hafa af vangaveltum um hvort varamaður hans í borgarráði, Guðlaugur Sverrisson, megi sitja í ráðinu. Á borgarráðsfundi í morgun var lagt fram álit skrifstofustjóra borgarstjórnar þar sem kemur fram að reglur í varðandi gjaldgengi varamanna í borgarráði séu óljósar. Guðlaugur var á lista framsóknarmanna fyrir síðustu kosningar en hann er hins vegar ekki varamaður Óskars Bergssonar. Málinu hefur verið vísað til forsætisnefndar og segist Óskar þess fullviss að málið verði til lykta leitt þar. 4. september 2008 13:17 Mest lesið Stafræn skírteini hætta í símaveskjum Innlent Framtíð kirkjunnar enn óráðin Innlent Nýtt slagorð Ísland Duty Free: „Ég er á leiðinni“ Innlent Margt ábótavant við byggingu Brákarborgar Innlent Strandveiðisjómenn vilji aftur fá kvóta sem þeir hafi selt frá sér Innlent Málinu lokið með sátt: „Við erum mjög sáttar með niðurstöðuna“ Innlent Segir nafn Trumps vera í Epstein-skjölunum Erlent Inga endurvekur 25 metra regluna Innlent Dómur yfir Erni Geirdal mildaður Innlent Sári djúpt snortinn yfir stuðningi Innlent Fleiri fréttir Stafræn skírteini hætta í símaveskjum Margt ábótavant við byggingu Brákarborgar Framtíð kirkjunnar enn óráðin Strandveiðisjómenn vilji aftur fá kvóta sem þeir hafi selt frá sér Nýtt slagorð Ísland Duty Free: „Ég er á leiðinni“ Börn verði að fá þau skilaboð að ofbeldi gegn þeim sé aldrei réttlætanlegt Gestum ráðið frá að heimsækja Dettifoss vegna stórrar skriðu Inga Sæland segist vera allt of löt að hreyfa sig Fá Barnaverndarmál leiða til ákæru og Herkastalinn í nýjar hendur Ísland, þvert á flokka boðar til annarra mótmæla Parísarhjólið rís á ný Lögregla fann bakpoka fullan af skilríkjum Braust inn hjá vinsælum hársnyrti og hafði af honum vegabréfið Sérsveitin kölluð út vegna vopnaðs manns Ferðamaður ók húsbíl niður göngustíg Biðjast afsökunar á ummælum björgunarmanns Dómar fólks sem sótti fíkniefni fyrir salann sinn mildaðir Dómur yfir Erni Geirdal mildaður Óskýrt hvort loftbyssuskot að hinsegin fólki hafi verið hatursglæpur Ljósmyndaskólinn lokar dyrum sínum: „Þetta er mikil sorg“ Málinu lokið með sátt: „Við erum mjög sáttar með niðurstöðuna“ Fimmtíu vilja nýja stöðu verkefnastjóra samskipta Metfjöldi barna í Kvennaathvarfinu Þaggaði niður í þingmönnum sem sögðu Kristrúnu snúa út úr Ekkert sem bendi til þess að Víðir hafi stigið yfir strikið Leigubílstjórar ósáttir við lokun skúrsins: „Aumingjaskapur í þeim“ „Þetta er úrkoma sem má vænta á einhverra áratuga fresti“ Metfjöldi barna í Kvennaathvarfinu og sérfræðingur segir Víði ekki hafa brotið reglur Álverið vildi ekki þurfa að vakta Norðurá og firðina Bein útsending: HÍ og heimsmarkmiðin – Hagvöxtur og hagsæld á tímum umbreytinga Sjá meira
Vafamál hvort varamaður Framsóknar í borgarráði megi sitja þar Vafamál er að varafulltrúi Framsóknarflokksins sé kjörgengur til borgarráðs eftir því sem fram kemur í svari skrifstofustjóra borgarstjórnar. 4. september 2008 11:30
Áhyggjur minnihlutans angra Guðlaug ekki Á borgarráðsfundi í morgun var lagt fram álit skrifstofustjóra borgarstjórnar þar sem kemur fram að reglur varðandi gjaldgengi varamanna í borgarráði eru óljósar. 4. september 2008 15:41
Óskar áhyggjulaus yfir setu Guðlaugs í borgarráði Óskar Bergsson borgarfulltrúi Framsóknarflokksins segist engar áhyggjur hafa af vangaveltum um hvort varamaður hans í borgarráði, Guðlaugur Sverrisson, megi sitja í ráðinu. Á borgarráðsfundi í morgun var lagt fram álit skrifstofustjóra borgarstjórnar þar sem kemur fram að reglur í varðandi gjaldgengi varamanna í borgarráði séu óljósar. Guðlaugur var á lista framsóknarmanna fyrir síðustu kosningar en hann er hins vegar ekki varamaður Óskars Bergssonar. Málinu hefur verið vísað til forsætisnefndar og segist Óskar þess fullviss að málið verði til lykta leitt þar. 4. september 2008 13:17