Innbrot í miðborginni 5. febrúar 2009 18:25
Tvö innbrot í fyrirtæki í miðborginni voru tilkynnt til lögreglunnar í gær, eftir því sem fram kemur í frétt frá lögreglunni. Á öðrum staðnum braut þjófurinn rúðu til að geta teygt sig í afgreiðslukassann en sá hafði ekki ýkja mikið upp úr krafsinu. Á hinum staðnum saknaði eigandinn einkum drykkjarvara en þjófurinn hafði bæði gos og áfengi á brott með sér. Þá var tveimur tölvum, auk ýmissa annara muna, stolið úr íbúðarhúsi í borginni en lögreglu tókst að endurheimta flesta hlutina fljótt og vel og koma þeim aftur í réttar hendur. Þá var Ipod stolið úr bíl í vesturbænum og í Hafnarfirði var geislaspilari tekinn úr bíl í bænum. Þá segir lögreglan að talsvert sé um að vörum sé stolið úr verslunum þessar vikurnar. Nokkur hnuplmál komu til kasta lögreglunnar í gær en í Smáralind voru þjófar staðnir að verki í þrígang. Í Kringlunni var líka þjófur gripinn glóðvolgur en fólk virðist girnast varning af ýmsu tagi. Í gær voru það einkum snyrtivörur sem freistuðu þjófanna. Þá var handtösku stolið frá konu sem var að störfum í húsi við Laugaveg. Í töskunni voru m.a greiðslukort hennar, ökuskírteini og sími. Þjófarnir, sem komu við sögu hjá lögreglu í þessum málum, eru á ýmsum aldri og af báðum kynjum.
Mest lesið Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Erlent Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Innlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Simmi vinsælasti leynigesturinn Innlent „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Innlent Gummi lögga er maður ársins 2025 Innlent „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Innlent Dótturdóttir JFK er látin Erlent Fleiri fréttir Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Rúmur helmingur bjartsýnn fyrir 2026 Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Börn niður í leikskólaaldur um helmingur þeirra sem slasast „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Sátt við fyrsta árið og taka stöðuna vegna forfalla ráðherra á næstu dögum Tíu létust í umferðinni á árinu og alvarlegustu slysunum fækkar ekki Árangur aðgerða ekki staðist væntingar almennings Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Ríkisstjórnin sek um ósanngjarna mismunun Vonbrigði í menntamálum og áramótasprengja Hafa áhyggjur af frelsissviptingu barna í brottfararstöð Kristrún ræðir við Pétur um borgarstjórnarframboð Níu ráðherrar funda með Höllu Sjá meira