Innlent

Össur og Helgi vilja ofar á lista

Össur Skarphéðinsson.
Össur Skarphéðinsson.

Össur Skarphéðinsson, utanríkis- og iðnaðarráðherra, hefur ákveðið að gefa kost á sér í annað sætið í prókjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Áður hafði hann boðið sig fram í þriðja sætið en í kjölfar yfirlýsingar Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur um að hún væri hætt í stjórnmálum hefur hann ákveðið að stefna hærra. Hann sækist því eftir öðru sætinu í prófkjörinu. Helgi Hjörvar alþingismaður hefur einnig ákveðið að sækjast eftir þriðja sætinu í stað þess fjórða.

„Í ljósi þess að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur af heilsufarsástæðum hætt þátttöku í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík vegna alþingiskosninga í vor hef ég ákveðið að gefa kost á mér í annað sæti í kjörinu," segir Össur í yfirlýsingu. „Ég gef því kost á mér til þess að leiða lista Samfylkingarinnar í öðru af Reykjavíkurkjördæmunum tveimur og mun sem fyrr leggja höfuðáherslu á endurnýjun atvinnulífsins, baráttu gegn atvinnuleysi og fyrir öruggri velferðarþjónustu."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×