Innlent

Braust inn í félagsmiðstöð

Brotist var inn í félagsmiðstöð við Hólmasel í Breiðholti í nótt og þaðan stolið sjónvarpstæki og skjávarpa. Þjófurinn braut upp þrjár hurðir til að komast að ránsfengnum og komst hann undan.

Þjófar virðast leita víða fanga því að undanförnu hefur verið brotist inn í söngskóla, fiskbúð, skóla og svo bókasafn núna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×