Segist engin augljós mistök hafa gert 13. febrúar 2009 03:45 Geir Haarde í HARDtalk. Segist hafa dregið þann lærdóm af íslenska bankahruninu að „ekki sé mögulegt að hafa algerlega opið hagkerfi, sem er jafn lítið og það íslenska, með algjöru frelsi fjármagnsflutninga og eigin gjaldmiðil“. Mynd úr útsendingu BBC
Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fékk á sig erfiðar spurningar þegar hann mætti í viðtal í þættinum HARDtalk á bresku sjónvarpsstöðinni BBC í gær. Spyrjandinn, Stephen Sackur, krafðist skýrra svara um það hvort Geir væri reiðubúinn til þess að biðja þjóð sína afsökunar á mistökum sem hann hafði gert, bæði sem fjármálaráðherra til margra ára og síðast forsætisráðherra. „Ég tel ekki að nein augljós mistök hafi verið gerð,“ sagði Geir og reyndi að verjast. „Þetta var röð atburða, þróun sem átti sér stað stig af stigi, og ef þú vilt fara út í að leita sökudólgs, þá þurfa ansi margir að deila þeirri sök með mér.“ Sackur ítrekaði spurninguna hvað eftir annað, en Geir vísaði jafnan til þess að fyrst yrði rannsóknarnefndin, sem á að skila af sér niðurstöðum í nóvember, að hafa lokið rannsókn sinni á því sem gerðist og hvað fór úrskeiðis í aðdraganda bankahrunsins. „Ég tek á mig minn hluta af ábyrgðinni þegar þetta er komið í ljós og í öllu falli mun ég ekki gera það í sjónvarpsþætti á BBC, þú fyrirgefur,“ sagði Geir. Geir vildi ekki heldur staðfesta það hvort Davíð Oddsson seðlabankastjóri hefði ítrekað varað hann við hruni íslenska fjármálakerfisins. „Ég ætla ekki að segja þér hvað fór okkar á milli í einkasamræðum,“ sagði Geir. „Allt þetta kemur í ljós þegar rannsókninni er lokið.“ „Þetta snýst býst ég við um að sýna forystu,“ sagði þá spyrjandinn. „Fólk vildi sjá þig sýna raunverulega forystu, en það sá það ekki, er það nokkuð? „Það er ekki mitt að meta það, herra minn,“ svaraði þá Geir.Geir ítrekar í viðtalinu ásakanir sínar á hendur Gordon Brown, sem setti hryðjverkalög fyrst á íslenska ríkið og síðan Landsbankann: „Það sem gerðist í byrjun október af hálfu breska ríkisins var að mínu mati algerlega óafsakanlegt, ónauðsynlegt með öllu og án minnstu viðvörunar.“ Sacker spyr þá hvort Geir hafi sagt þetta við Brown, en Geir segist ekki hafa rætt við hann eftir þetta. „Hvers vegna ekki?“ spyr þá Sacker. „Hvers vegna settirðu þig ekki strax í samband við hann og sagðir honum þitt álit?“ „Ja, ég hefði kannski átt að gera það,“ svaraði þá Geir. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Brotlenti í djúpu gili Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Fleiri fréttir Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Sjá meira