Bankaráðsseta rektors hefur ekkert með HR að gera Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 18. júní 2009 18:18 Jóhann Hlíðar Harðarson, upplýsingafulltrúi HR.
Jóhann Hlíðar Harðarson, upplýsingafulltrúi Háskólans í Reykjavík, segir setu Svöfu Grönfeldt í bankaráði Landsbankans ekki hafa neitt með HR að gera, enda hafi HR ekki átt neina fjármuni í Landsbankanum. Þetta áréttar Jóhann vegna greinarinnar Fjórar bækur um hrun eftir Þorvald Gylfason, sem birtist í Fréttablaðinu í morgun. Í greininni fjallar Þorvaldur meðal annars um bækur Guðna Th. Jóhannessonar og Þorkels Sigurlaugssonar um atburðina eftir hrun. Í greininni stendur: „Rektor Háskólans í Reykjavík, þar sem þeir Guðni og Þorkell starfa báðir, hefur lýst því á starfsmannafundum í skólanum, hvernig henni tókst að forða sjóðum skólans í skjól í tæka tíð, áður en hún hvarf úr bankaráði Landsbankans eftir hrunið." Jóhann Hlíðar segir fjármuni HR hafa verið geymda í Glitni, en ekki Landsbankanum, og því hafi bankaráðsseta Svöfu ekkert með skólann að gera. „HR tók þá peninga úr Glitni og keypti ríkisskuldabréf og síðan þá hafa þeir peningar verið í umsjá Auðar Capital," segir Jóhann. „Þetta er skýringin á hennar ummælum í haust." Jóhann segir þessa ráðstöfun aldrei hafa verið leyndarmál. Aðspurður hvaða skoðun hann hafi á grein Þorvaldar segist Jóhann ætla að leyfa sér að hafa ekki skoðun á henni. Fréttastofa hafði samband við Þorvald Gylfason í dag en hann vildi ekki tjá sig um málið umfram það sem stóð í grein hans í Fréttablaðinu.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira