Erlent

Kveiktu í smyglsnekkju og stukku í sjóinn

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Bögglar með kókaíni. Myndin tengist ekki þessari frétt.
Bögglar með kókaíni. Myndin tengist ekki þessari frétt.

Bandaríski sjóherinn hefur birt myndband sem sýnir mexíkóska fíkniefnasmyglara á lúxussnekkju fleygja mörgum kílógrömmum af kókaíni í sjóinn, kveikja í snekkjunni og stökkva svo sjálfir í sjóinn. Þetta gerðu smyglararnir þegar Bandaríkjamennirnir veittu þeim eftirför undan strönd Mexíkó. Mexíkóski sjóherinn kom þeim bandaríska til aðstoðar og tókst að veiða eitthvað af kókaíninu upp úr sjónum en smyglararnir voru handteknir. Alls var hald lagt á um hálft tonn af kókaíni í aðgerðinni.

Myndbandið má nálgast hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×