Hótelkeðja hefur áhuga á Þingvöllum 14. júlí 2009 04:30 hótel valhöll Hótelið brann til grunna síðasta föstudag en hótel hafði verið á staðnum frá 1898. fréttablaðið/arnþór
Fosshótel hefði mikinn áhuga á því að reisa hótel á Þingvöllum ef það stæði til boða, að sögn Þórðar B. Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Fosshótela. „Þingvellir eru óviðjafnanleg staðsetning. Í mínum huga skiptir ekki öllu máli hvar hótelið myndi rísa heldur er bara mjög eftirsóknarvert að vera með hótel á Þingvöllum, hvar sem það yrði," segir Þórður. Mikið hefur verið rætt um hugsanlegan áframhaldandi hótelrekstur á Þingvöllum eftir bruna Hótels Valhallar á föstudag. Fosshótel skoðaði Hótel Valhöll árið 2005 þegar ríkið ætlaði að bjóða reksturinn út, að sögn Þórðar. Hins vegar ákvað hótelkeðjan að stíga ekki inn í reksturinn. Ástæðan var að húsið var nánast ónýtt, að sögn Þórðar, eins og skýrsla frá 2006 staðfestir. „Það hefði þurft að fara í svo kostnaðarsamar aðgerðir að við vildum ekki vera með," segir Þórður. Þórður segir, að þrátt fyrir að Þingvellir séu kjörstaðsetning, skilji hann mætavel þau sjónarmið að menn vilji almennt ekki framkvæmdir í þjóðgarðinum. Þjóðgarðurinn á Þingvöllum hefur verið á heimsminjaskrá UNESCO frá 2004. Vegna sérstöðu þjóðgarðsins þarf tilskilin leyfi til framkvæmda við hann. Icelandair-hótelkeðjan, sem meðal annars rekur Eddu-hótelin, hefur ekki áhuga á að byggja hótel í þjóðgarðinum, að sögn Magneu Þóreyjar Hjálmarsdóttur, framkvæmdastjóra hótelkeðjunnar. Hún segir þau vera með hótel rétt við þjóðgarðinn, Hótel Hengil, sem þau séu sátt við, „enda frábær staðsetning", að sögn Magneu. „Ég á ekki von á að hótel verði reist á rústum Hótels Valhallar," segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustu. Hún segir eðlilegra, að ef ráðist verði í byggingu hótels yrði það gert í jaðri þjóðgarðsins. Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri Bláskógabyggðar, þess sveitarfélags sem Þingvellir tilheyra, segir að menn verði að skoða hver sé heppilegasti staðurinn fyrir hótel. Hann telur hótelrekstur eiga fullan rétt á sér á þessu svæði. vidirp@frettabladid.is
Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Innlent Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Innlent Fleiri fréttir Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Sjá meira