Tvær tónlistarhátíðir um ferðahelgi 27. maí 2009 04:30 Ragnheiður kemur fram á tónlistarhátíðinni Norden Blues Festival sem er haldin í fyrsta sinn í Rangárvallasýslu.fréttablaðið/arnþór
Tvær tónlistarhátíðir verða haldnar á Akureyri og í Rangárvallasýslu um hvítasunnuhelgina, þessa fyrstu stóru ferðahelgi ársins. Önnur heitir AIM-festival en hin Norden Blues Festival. Allt að eitt hundrað tónlistarmenn koma fram á Norden Blues Festival, þar á meðal Grana Louise frá Chicago ásamt Blue Ice Band, Andrea Gylfadóttir, Kristjana Stefánsdóttir og Ragnheiður Gröndal. Á meðal hljómsveita sem stíga á svið eru South River Band, Slow Train og Mood. Haldnir verða liðlega fimmtíu tónleikar sem munu dreifast um Rangárvallasýslu frá föstudegi til sunnudags. „Ég hef búið í þessu sveitarfélagi í 25 ár og er búinn að ganga með þessa grillu í höfðinu sennilega í tólf til fimmtán ár að koma þessu á koppinn,“ segir Sigurgeir Guðmundsson í Heklu Blúsfélagi sem skipuleggur hátíðina. „Þetta er virkilega spennandi verkefni og það er hvetjandi og krefjandi líka að takast á við þetta.“ Hann segir að koma Grana Louise á hátíðina sé mikill fengur. „Hún á að syngja tíu dögum eftir þessa hátíð á Chicago Blues Festival sem sýnir að hún er mikils metin í þessum heimi.“ Útgangspunktar Norden Blues Festival verða byggðakjarnarnir Hella og Hvolsvöllur ásamt ferðaþjónustuaðilum í Fljótshlíð. Einnig verða tónlistaruppákomur í Þykkvabæ. Skipulagðar verða rútuferðir á milli tónleikastaða og helstu gististaða meðan á hátíðinni stendur. Við skipulagningu og uppbyggingu hátíðarinnar er m.a. tekið mið af reynslu Norðmanna og Blúshátíðar í Reykjavík, sem styður dyggilega við verkefnið. Hugmyndin er að gera hátíðina að árvissum viðburði í Rangárvallasýslu. Alþjóðlega tónlistarhátíðin AIM Festival á Akureyri, sem stendur yfir frá 29. maí til 4. júní, er nú haldin í fjórða sinn. Alls komu um fimm þúsund gestir á hátíðina í fyrra og er ekki búist við færra fólki í ár. Framkvæmdastýran Guðrún Þórs segir að undirbúningurinn hafi gengið mjög vel. „Það er öðruvísi áhugi en hefur verið í gegnum árin. Ég upplifi meiri þörf hjá fólki fyrir að hafa gaman og gera eitthvað saman,“ segir hún. „Ég á von á fjölda hérna, bæði Reykvíkingum og fólki utan af landi.“ Á meðal þeirra sem stíga á svið eru: Hjálmar, Retro Stefsson, Stórsveit Akureyrar undir stjórn Spánverjans Alberto Carmona og Stórsveit Reykjavíkur ásamt saxófónleikaranum Bob Mintzer, Reykjavík!, Sudden Weather Change, Nýdönsk og Mótettukór Hallgrímskirkju. Nánari upplýsingar um báðar hátíðirnar má finna á Midi.is. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Fleiri fréttir Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Sjá meira