Innlent

Forkastanlegt og heimskulegt lögbann

Helga Arnardóttir skrifar
Lögbann Kaupþings á fréttaflutning Ríkisútvarpsins um lánamál stærstu viðskiptavina bankans er forkastanlegt og heimskulegt segir formaður viðskiptanefndar Alþlingis. Hún segir að ef breyta þurfi lögunum um bankaleynd til að koma í veg fyrir svona vitleysisgang þá sé það brýnt.

Lögbannið sem sett var á fréttaflutning Ríkisútvarpsins síðastliðinn laugardag að beiðni Kaupþings hefur vakið hörð viðbrögð bæði í netheimum og víðar. Lögbannið á eingöngu við fréttaflutning Ríkisútvarpsins upp úr lánayfirliti Kaupþings sem lekið var á netið fyrir skömmu. Álfheiður Ingadóttir formaður viðskiptanefndar Alþingis segir lögbannið forkastanlegt.

Stofnaður var hópur á facebook sem ber yfirskriftina hættum viðskiptum við Kaupþing og hafa tæplega ellefu hundruð manns skráð sig. Þá lýsti Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra því yfir á heimasíðu sinni í dag að bankaleynd sé siðleysi af hæstu gráðu og henni eigi að aflétta af öllum fjármálastofnunum ekki eingöngu Kaupþingi heldur líka Landsbankanum og Sparisjóðunum.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hyggst ekki tjá sig um málið fyrr en dómur kemur í staðfestingarmáli um lögbannið en Kaupþingsmenn hafa viku frá því að lögbann er lagt á til að höfða málið.

Þá náði Fréttastofa í Sigurð Einarsson fyrrverandi stjórnarformann Kaupþings í dag en hann sagðist ekki hafa áhuga á að tjá sig um málið að svo stöddu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×