Innlent

Hellisheiði opnuð á nýjan leik

Frá Hellisheiði.
Frá Hellisheiði.

Nýjustu fréttir af færðinni eru þær að Hellisheiði hefur verið opnuð en þar er krapi og hálka er á Sandskeiði og í Þrengslum. Á Vestfjörðum er ófært um Hálfdán, Mikladal, Kleifaheiði og á Klettshálsi er stórhríð og ekkert ferðaveður.

Þungfært er í Ísafjarðardjúpi og ófært á Steingrímsfjarðarheiði. Þungfært er á Gemlufallsheiði og mokstur stendur yfir.

Ófært er um Víkurskarð á Norðausturlandi og einnig er ófært um Fjarðarheiði á Austurlandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×