Samflokksmenn þrýsta á Geir 22. janúar 2009 07:00
Innan úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins heyrist: Að stjórnarslit sem og tímasetning kosninga hafi verið rædd á þingflokksfundinum í gær. Umræður í samfélaginu séu einfaldlega þess eðlis að ekki hafi verið hjá því komist. Samdóma niðurstaða fundarins var að það væri óábyrgt að boða til kosninga við þær aðstæður sem eru í samfélaginu og ríkisstjórnin verði að beina kröftum sínum að tvennu. Viðreisn fjármálakerfisins og aðgerðum sem sniðnar verða að þörfum heimilanna. Þegar þeirri vinnu er lokið sé hins vegar eðlilegt að ræða um kosningar. Mikil spenna sé á milli stjórnarflokkanna en samband formannanna, Ingibjargar og Geirs, sé gott og þau ræðist við reglulega. Sívaxandi óánægja innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins með að forsætisráðherra hafi ekki beitt sér fyrir breytingum á embættismannakerfinu, og er þar vísað til Seðlabanka og Fjármálaeftirlits. Það hafi veikt stöðu formannsins og jafnframt séu slíkar breytingar forsenda áframhaldandi stjórnarsamstarfs. Vegna óróa í samfélaginu, sem hefur kristallast í mótmælaaðgerðum undanfarna daga, sé nauðsynlegt að skýra fyrir fólki hvort og hvenær boðað verði til kosninga. Þar komi til greina að menn komi sér saman um dagsetningu kosninga; að öðrum kosti muni alda mótmæla rísa enn hærra. Samverkamenn Geirs hafa þrýst mjög á hann að bregðast við á sýnilegan hátt. Ekki sé endilega þörf á mikilli endurnýjun í þingflokknum í heild en ráðherraliðið muni klárlega taka miklum breytingum.- shá
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira