Innlent

Nítján manns missa vinnuna

Stór hluti af starfsemi Mílu felst í að leggja fjarskiptakerfi í ný hverfi. Frost í byggingariðnaði hefur því dregið úr umsvifum fyrirtækisins. Fréttablaðið/Vilhelm
Stór hluti af starfsemi Mílu felst í að leggja fjarskiptakerfi í ný hverfi. Frost í byggingariðnaði hefur því dregið úr umsvifum fyrirtækisins. Fréttablaðið/Vilhelm

„Þetta er sársaukafullt fyrir fólkið sem lendir í uppsögnunum en einnig fyrir okkur sem eftir eru. Það er erfitt að standa í svona löguðu en þetta var því miður nauðsynleg aðgerð,“ segir Páll Á. Jónsson, framkvæmdastjóri Mílu. Nítján starfsmönnum fyrirtækisins, sem rekur fjarskiptanet landsmanna, hefur verið sagt upp störfum, tíu á höfuðborgarsvæðinu og níu á landsbyggðinni.

Verulega hefur dregið saman í starfsemi fyrir­tækis­ins á höfuðborgarsvæðinu með hruni byggingar­iðnaðarins. Páll segir ónýttar fjárfestingar félagsins í nýjum götum nema um tveimur milljörðum króna. „Þegar búið er að malbika nýjar götur erum við búin að leggja fjarskiptakerfin fyrir þær. Það er því búið að leggja línur fyrir Úlfarsfellið, Helgafellslandið og fleiri hverfi, bæði í  Reykjavík og annars staðar á landinu, sem er ekki verið að nota.“

Þá voru starfsstöðvar Mílu á Húsavík, Patreksfirði, Stykkishólmi og Borgarnesi lagðar niður en gerðir samningar við samstarfsaðila Mílu um að taka yfir þjónustu við viðskiptavini á þeim svæðum. Segist Páll eiga von á að einhverjum starfsmannanna sem sagt var upp verði boðin vinna hjá þeim. - hhs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×